Sandfell SU 75

Sandfell SU 75 ex Óli á Stað GK 99. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018.

Hér er línubáturinn Sandfell SU 75 á leið í róður frá Húsavík. Þetta var 16. október sl. en báturinn hafði landað hér deginum áður.

Beið síðan af sér brælu fram undir hádegi og þá tók ég þessar myndir.

Sandfell er í eigu Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði og hét áður Óli á Stað GK 99.

Sandfell SU 75 er með 4 menn í áhöfn. Báturinn er smíðaður hjá Seiglu á Akureyri 2014. er 14,8 m langur, 5,6 m breiður og er um 29,63 BT að stærð.

2841. Sandfell SU 75 ex Óli á Stað GK 99. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í stærri upplausn.

Færðu inn athugasemd