2962. Vörður ÞH 44 landaði í Grindavík í gær. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson. Vörður ÞH 44 kom í gærmorgun til löndunar í Grindavík. Aflinn var um 140 kör eftir tæpa tvo sólarhringa á veiðum. Jón Steinar tók þessar myndir af Verði sem hélt út aftur að löndun lokinni. Jón Steinar bendir á að þessi löndun … Halda áfram að lesa Vörður landaði í Grindavík í gær
Flokkur: Togarar
Jón á Hofi kom og fór
1645. Jón á Hofi SI 42 ex Jón á Hofi ÁR 42. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Jón á Hofi SI 42 sem Ísfélagið hf. gerir út til rækjuveiða kom til Húsavíkur í dag til að taka veiðafæri um borð. Jón á Hofi var áður ÁR 42 en einkennisstöfunum var breytt í SI sumarið 2024. Áður hét … Halda áfram að lesa Jón á Hofi kom og fór
Snæfell EA 310
2212. Snæfell EA 310 ex Akraberg FD 10. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Þessi mynd sem nú birtist var tekin í ágústmánuði árið 2022 þegar frystitogarinn Snæfell EA 310 kom til heimahafnar á Akureyri. Samherji hf. hafði fyrr á árinu keypt skipið frá Færeyjum og var það að koma úr slipp í Danmörku. Um komu skipsins … Halda áfram að lesa Snæfell EA 310
Hvannaberg ÓF 72
2206. Hvannaberg ÓF 72 ex Baldur EA 108. Ljósmynd Olgeir Sigurðsson. Hvannaberg ÓF 72 er hér a toginu á rækjumiðunum út af Norðurlandi um árið en Sæberg hf., síðar Þormóður rammi-Sæberg, gerði hann út. Hvannaberg, sem var 475 brl. að stærð, hét áður Baldur EA 108 en Snorri Snorrason útgerðarmaður á Dalvík keypti togarann frá … Halda áfram að lesa Hvannaberg ÓF 72
Akurey AK 10
2890. Akurey AK 10. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Skuttogarinn Akurey AK 10 kemur hér að bryggju í Reykjavík vorið 2018. Hann var smíðaður í Tyrklandi og kom til landsins þann 20.júní 2017. Akurey er eitt þriggja systurskipa sem HB Grandi, nú Brim, lét smíða í Céliktrans skipasmíðastöðinni í Istanbul. Hin eru Engey, sem var seld … Halda áfram að lesa Akurey AK 10
Björg EA 7
2894. Björg EA 7. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2017. Þessi mynd var tekin þegar Björg EA 7 kom í fyrsta skipti til heimahafnar á Akureyri. Björg EA 7, sem er í eigu Samherja hf., kom til Akureyrar eftir siglingu frá Tyrklandi þann 31. október árið 2017. Björg EA 7 var síðust í röð fjögurra systurskipa sem … Halda áfram að lesa Björg EA 7
Svalbarði í slipp á Akureyri
1352. Svalbarði SI 302 ex Svalbakur EA 302. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Skuttogarinn Svalbarði SI 302 er hér í slipp á Akureyri en hann hét áður Svalbakur EA 302. Útgerðarfélag Akureyringa keypti systurskipin Stellu Karinu og Stellu Kristinu frá Færeyjum árið 1973 og komu þau til heimahafnar á Akureyri í desember það ár. Skipin voru byggð … Halda áfram að lesa Svalbarði í slipp á Akureyri
Harðbakur EA 303
1412. Harðbakur EA 303. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Skuttogarinn Harðbakur EA 303 var smíðaður í San Juan skammt frá San Sebastian á Norður-Spáni fyrir Útgerðarfélag Akureringa h/f. Harðbakur, sem var síðastur Spánartogaranna sex af stærri gerðinni, kom til heimahafnar á Akureyri þann 26. mars árið 1975. Útgerðarfélag Akureyringa h/f. fékk einnig næst síðasta skuttogarann sem smíðaður var … Halda áfram að lesa Harðbakur EA 303
Sigluvík SI 2
1349. Sigluvík Si 2. Ljósmynd Olgeir Sigurðsson. Sigluvík SI 2 sést hér á toginu um árið en hún var einn Spánartogaranna af minni gerðinni og alla tíð gerð út frá Siglufirði. Togarinn var smíðaður fyrir Þormóð ramma h.f. á Siglufirði kom til landsins þann 7. apríl 1974. Hann var smíðaður hjá Astiller skipasmíðastöðinni í Huelva … Halda áfram að lesa Sigluvík SI 2
Húsvíkingur ÞH 1
2216. Húsvíkingur ÞH 1 ex Pétur Jónsson RE 69. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson 1997. Hér liggur Húsvíkingur ÞH 1 við Norðurgarðinn í Húsavíkurhöfn og var þetta í fyrsta skiptið af örfáum sem hann kom í heimahöfn. Húsvíkingur hét upphaflega Pétur Jónsson RE 69 og var smíðaður árið 1994 fyrir Pétur Stefánsson skipstjóra og útgerðarmann. Smíðin fór … Halda áfram að lesa Húsvíkingur ÞH 1









