Bátar í slipp á Húsavík. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Nýársmynd sem tekin var við slippinn á Húsavík eftir hádegi í dag en þar eru uppi tveir af bátum Norðursiglingar. Þetta eru Náttfari, smíðaður í Stykkishólmi árið 1965 og Sæborg, smíðuð á Akureyri árið 1977. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana … Halda áfram að lesa Bátar í slipp á Nýársdegi
Flokkur: Hvalaskoðunarbátar
Sylvía ljósum prýdd
1468. Sylvía ex Björgvin ÍS 468. Ljómynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Hérna liggur Sylvía ljósum prýdd í Húsavíkurhöfn en hún er í eigu Gentle Giants sem einnig á Fald ásamt flota Ömmubáta af RIB gerð. Sylvía var smíðuð í Bátasmiðjunni Vör hf. á Akureyri 1976 fyrir Grenvíkinga og hét upphaflega Sigrún ÞH 169. Með því að … Halda áfram að lesa Sylvía ljósum prýdd
Whales EA 200 kemur að landi
500. Whales EA 200 ex Gunnar Hámundarson GK 357. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Hvalaskoðunarbáturinn Whales EA 200 kemur hér að landi á Hauganesi í byrjun vikunnar. Báturinn, sem er 53 brl. að stærð, hét upphaflega Gunnar Hámundarson GK 357 og var smíðaður árið 1954 í Ytri Njarðvík. Hann var með smíðanúmer 1 hjá Skipasmíðastöð Njarðvíkur. … Halda áfram að lesa Whales EA 200 kemur að landi
Whales EA 200 við bryggju á Hauganesi
500. Whales EA 200 ex Gunnar Hámundarson GK 357. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Hvalaskoðunarbáturinn Whales EA 200 liggur hér við flotbryggjuna á Hauganesi í gær og einnig má sjá Níels Jónsson EA 106. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can view … Halda áfram að lesa Whales EA 200 við bryggju á Hauganesi
Náttfari ljósum prýddur
993. Náttfari ex Byrefjell. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Þeim fjölgar bátunum í Húsavíkurhöfn sem prýðast jólaljósum og í dag kom serían upp á Náttfara. Náttfari var smíðaður í Skipavík í Stykkishólmi árið 1965 og hét upphaflega Þróttur SH 4. Þróttur, sem var fyrsti báturinn sem Skipavík smíðaði, hét ýmsum nöfnum í gegnum tíðina en Norðursigling … Halda áfram að lesa Náttfari ljósum prýddur
Jólaljósin komin upp á Faldinum
1267. Faldur ex Faldur ÞH 153. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Jólaljósin eru komin upp á hvalaskoðunarbátnum Faldi þar sem hann liggur í Húsavíkurhöfn. Það var því skundað niður á stétt núna á sjötta tímanum og teknar nokkrar myndir og hér er ein þeirra. Faldur hét upphaflega Votaberg ÞH 153 og var smíðaður hjá Skipaviðgerðum hf. … Halda áfram að lesa Jólaljósin komin upp á Faldinum
Salka og Fanney komnar í jólabúninginn
1470. Salka og 1445. fanney við bryggju á Húsavík í kvöld. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þrátt fyrir að enn séu 30 dagar, 20 klukkustundir, 22 mínútur og 10 sekúndur til jóla (þegar þetta er skrifað) eru hvalaskoðunarbátarnir Salka og Fanney komnar í jólabúninginn. Ef síðuritara skjöplast ekki er það einum 4-5 dögum fyrr en á síðsta … Halda áfram að lesa Salka og Fanney komnar í jólabúninginn
Garðar kemur að bryggju í dag
260. Garðar ex Sveinbjörn Jakobsson SH 10. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Hvalaskoðunarbáturinn Garðar kemur hér að bryggju í haustblíðunni í dag. Upphaflega og lengst af Sveinbjörn Jakobsson SH 10 frá Ólafsvík. Smíðaður fyrir Útgerðarfélagið Dverg hf. í Esbjerg í Danmörku árið 1964. Norðursigling ehf. á Húsavík keypti bátinn haustið 2006 og gerði upp til siglinga … Halda áfram að lesa Garðar kemur að bryggju í dag
Hildur, Andvari og Sæborg
1354. Hildur ex Héðinn HF 28. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hildur var byggð á Akureyri árið 1974 á Bátaverkstæði Gunnlauga og Trausta. Hét upphaflega Múli ÓF 5. Norðursigling keypti bátinn síðla sumars 2009 og um haustið var henni siglt til Engernsund í Danmörku. Þar var henni breytt í tveggja mastra skonnortu með bugspjóti. Hildur kom aftur … Halda áfram að lesa Hildur, Andvari og Sæborg
Fanney og Salka
1445. Fanney ex Siggi Þórðar GK 197. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Fanney ÞH 130 var smíðuð í Slippstöðinni á Akureyri árið 1976 fyrir Húsvíkinga en þaðan var báturinn gerður út til ársins 1997. Sölkusiglingar ehf. keyptu bátinn aftur til Húsavíkur síðla árs 2012 en þá hafði honum verið breytt til farþegaflutninga. Hann fékk aftur sitt gamla … Halda áfram að lesa Fanney og Salka









