Skip Vísis hf. við bryggju í Grindavík. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2024. Jón Steinar tók þessa mynd í gær af skipum Vísis hf. við bryggju í Grindavík en þar hafa þau legið yfir hátíðarnar. Línubátarnir Pall Jónsson GK 7 og Sighvatur GK 57 með togskipið Jóhönnu Gísladóttur GK 357 á milli sín. Með því að … Halda áfram að lesa Vísisskipin í Grindavíkurhöfn
Flokkur: Hafnir landsins
Þrír bláir
Dragnótabátar í Húsavíkurhöfn. Ljósmynd Hafþór Hreiðasson 2024. Blár er allsráðandi litur í íslenska bátaflotanum og hér sjást þrír slíkir í Húsavíkurhöfn sl. sunndag. Hafborgin liggur utan á Þvergarðinum og Geir fyrir innan en Bárður kemur að. Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn. By clicking on the images … Halda áfram að lesa Þrír bláir
Háey I og Hafborg við bryggju
2995. Háey I ÞH 295 - 2940. Hafborg EA 152. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Hér gefur að líta línubátinn Háey I ÞH 295 og neta- og dragnótabátinn Hafborgu EA 152 þar sem þeir lágu við Suðurgarðinn í Húsavíkurhöfn í gærkveldi. Háey I er gerð út af GPG Seafood ehf. á Húsavík en er með heimahöfn … Halda áfram að lesa Háey I og Hafborg við bryggju
Nýtt kvótaár hafið
Landað úr Haferni ÞH 26 á Húsavík í dag. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Nýtt kvótaár hófst í dag og einnig hefjast 1. september dragnótaveiðar innan línu á Skjálfandaflóa. Einn þeirra dragnótabáta sem réru í dag á Skjálfanda var Haförn ÞH 26 og á myndinni er Guðmundur Vilhjálmsson vélstjóri við löndun úr bátnum. Með því að smella … Halda áfram að lesa Nýtt kvótaár hafið
Trillubátar í fjöru
Trillubátar í fjörunni undan Beinabakkanum. Ljósmynd SRR. Hér gefur að líta trillur í fjörunni undan Beinabakkanum á Húsavík. Myndin var tekin um miðjan sjöunda áratug síðustu aldar. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can view them in higher resolution.
Við Húsavíkurhöfn sumarið 2008
1357. Níels Jónsson EA 106 ofl. bátar í Húsavíkurhöfn 30. júlí 2008. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þessi mynd var tekin 30. júlí sumarið 2008 og sýnir m.a Níels Jónsson EA 106 frá Hauganesi ásamt fleiri bátum. Svona fljótt á litið eru þrír þeirra ennþá hér en það eru Fram, Sævaldur og Lundey. Með því að smella … Halda áfram að lesa Við Húsavíkurhöfn sumarið 2008
Sumarið 2003
Við Húsavíkurhöfn 13. júlí árið 2003. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þessi mynd sem nú birtist var tekin þann 13. júlí árið 2003 og sýnir þrjú fley í Húsavíkurhöfn. Dröfn RE 35 er að koma að landi og utan á Þvergarðinum liggur Björg Jónsdóttir ÞH 321. Innan á garðinum er verið að landa úr rækjubátnum Baldri Árna … Halda áfram að lesa Sumarið 2003
Fjögur skip í dag
Húsavík í dag 21. maí 2024. Á þessari mynd sem tekin var í dag gefur að líta fjögur skip, Ronja Fjörd liggur við Þvergarðinn, Friðþjóf Nansen við Norðurgarðinn, Vechtborg við Bökugarðinn og fram undan höfðanum er Silver Endeavour. Þetta eru tvö skemmtiferðaskip, eitt flutningaskip með farm til PCC á Bakka og seiðaflutningaskip. Ef myndin hefði … Halda áfram að lesa Fjögur skip í dag
Bátar við bryggju í Grindavík
Bátar við bryggju í Grindavík. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þessi mynd var tekin í Grindavík um árið og sýnir þrjá báta við bryggju þar í bæ. Fremstur á myndinni er Fengsæll GK 262 sem áður hét m.a Ingólfur GK 125 og sjá má mynd af hér. Hann liggur utan á Hrímni SH 35 frá Stykkishólmi sem … Halda áfram að lesa Bátar við bryggju í Grindavík
Bátar við bryggju á Skagaströnd
Bátar við bryggju á Skagaströnd. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Hér gefur að líta nokkra báta við bryggju á Skagaströnd um árið, sennilega 1989. Þarna má þekkja Nökkva HU 62, Helgu Björgu HU 7 og Bjarna Helgason HU 109 auk Arnarborgarinnar sem var HU 11. Allir smíðaðir á Íslandi nema sá síðastnefndi. Með því að smella á … Halda áfram að lesa Bátar við bryggju á Skagaströnd









