Múlafoss - 2190.Eyborg EA 59. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér gefur að líta Múlafoss og Eyborgina úr Hrísey við hafnargarðinn á Húsavík sem kallaður var en heitir Norðurgarður. Myndin var tekin 1994 eða 1995 en Eyborg var á úthafsrækju og rótfiskaði undir skipsstjórn Eiríks Sigurðssonar. Ef ég man rétt. Með því að smella á myndina er … Halda áfram að lesa Múlafoss og Eyborg
Flokkur: Flutningaskip
Hagland Progress kom með salt til Helguvíkur
IMO 9936343. Hagland Progress. LJósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2024. Norska flutningaskipið Hagland Progress kom til Helguvíkur síðdegis í gær með 1500 tonn af salti á vegum Saltkaupa. Saltið fer til saltfiskvinnslu Vísis í Helguvík, en Vísir hefur komið sér upp vinnslu í Helguvík þar sem verkaður er saltfiskur á Portúgalsmarkað. Hagland Progress er nánast nýtt … Halda áfram að lesa Hagland Progress kom með salt til Helguvíkur
Vaasaborg á Skjálfanda
IMO 9196242. Vaasaborg ex Normed Hamburg. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Hollenska flutningaskipið Vaasaborg kom til Húsavíkur nú undir kvöld og lagðist að Bökugarðinum. Skipið er með hráefnisfarmi til kísilvers PCC á Bakka. Vaasaborg er 6,130 GT að stærð og var smíðað í Hollandi árið 2007. Lengd þess er 132 metrar og breiddin 15,85 metrar. Skipið … Halda áfram að lesa Vaasaborg á Skjálfanda
Brufjell við Bökugarðinn
IMO 9346665. Brufjell ex Damsterdijk. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Norska flutningaskipið Brufjell kom til Húsavíkur í gærkveldi og lagðist að Bökugarðinum þar sem skipað er upp hráefnisfarmi fyrir kísilver PCC á Bakka. Brufjell var smíðað í Goa á Indlandi árið 2007 og er 89,95 metra að lengd. Breidd þess er 14,4 metrar og það mælist … Halda áfram að lesa Brufjell við Bökugarðinn
Wilson Perth við Bökugarðinn
IMO 9287766. Wilson Perth ex Arklow Resolve. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Flutningaskipið Wilson Perth kom til Húsvíkur í gærkveldi og lagðist að Bökugarðinum þar sem skipað er upp hráefnisfarmi fyrir kísilver PCC á Bakka. Wilson Perth var smíðað í Hollandi árið 2004 og er 90 metra að lengd. Breidd þess er 14,2 metrar og það mælist 2,999 … Halda áfram að lesa Wilson Perth við Bökugarðinn
Olíuskipið Stapafell á Skjálfanda
1545. Satapafell. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Olíuskipið Stapafell kemur hér til Húsavíkur um árið en skipið var smíðað fyrir SÍS og Olíufélagið hf. í Þýskalandi árið 1979. Stapafell var 1532 brl. að stærð með heimahöfn í Keflavík. Stapafell var selt úr landi árið 2001 en þá var það í eigu Olíudreifingar ehf. í Reykjavík og hafði … Halda áfram að lesa Olíuskipið Stapafell á Skjálfanda
Flóabáturinn Drangur
1617. Flóabáturinn Drangur við bryggju á Húsavík. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér gefur að líta flóabátinn Drang við bryggju á Húsavík, nánar tiltekið utan á Suðurgarðinum. Drangur, sem smíðaður var í Rúmeníu, var keyptur ársgamall frá Noregi og kom til Akureyrar í júlímánuði árið 1982. Heimild: Dagur Miði frá Hauki Sugtryggi: 1617....Drangur.... TF-IQ. IMO: 8988959. Skipasmíðastöð: … Halda áfram að lesa Flóabáturinn Drangur
Wilson Calais kom til Húsavíkur í dag
IMO 9156101. Wilson Calais ex Steffen Sibum. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Flutningaskipið Wilson Calais kom til Húsvíkur í dag með hráefnisfarm fyrir kísilver PCC á Bakka. Skipið, sem var smíðað í Serbíu árið 2001, er tæplega 10 metra langt og breidd þess er 12,80 metrar. Það mælist 2,994 GT að stærð og siglir undir fána … Halda áfram að lesa Wilson Calais kom til Húsavíkur í dag
Wilson Porto kom með salt
IMO 9291717. Wilson Porto. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Flutningaskipið Wilson Porto kom með salt til GPG Seafood í vikunni. Skipið er 2,999 GT að stærð. Lengd þess er 90 metrar og breidd 14 metrar. Það var smíðað árið 2004 í Hollandi og siglir undir norsku flaggi. Með því að smella á myndina er hægt að … Halda áfram að lesa Wilson Porto kom með salt
Eems Rover kom til Húsavíkur
IMO 9529190. Eems Rover. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Hollenska flutningaskipið Eems Rover kom til Húsavíkur í dag eftir siglingu frá Belfast á Norður-Írlandi. Skipið, sem smíðað var árið 2009 í Kína, er með með hráefnisfarm fyrir PCC á Bakka. Eems Rover er 90 metrar að lengd, breidd þess er 15 metrar og skipið mælist 2,992 … Halda áfram að lesa Eems Rover kom til Húsavíkur









