Ostermarsch á Skjálfanda

Ostermarsch á Skjálfanda. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Flutningaskipið Ostermarsch hefur lónað fyrir utan Húsavík síðan í nótt en það er að koma með hraéfnisfarm fyrir PCC á Bakka. Edenborg er enn undir krananum hjá Eimskip við Bökugarðinn og því bíður Ostermarsch. Selfoss er þó á undan í röðinni en hann er væntanlegur á morgun. Ostermarsch … Halda áfram að lesa Ostermarsch á Skjálfanda

Edenborg við bryggju á Húsavík

Edenborg við Bökugarðinn. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Hollenska flutningaskipið Edenborg kom til Húsavíkur í morgun með hráefnisfarm fyrir PCC á Bakka. Skipið naut aðstoðar dráttarbátsins Seifs frá Akureyri við að leggjast að Bökugarðinum en það er 7,196 GT að stærð, smíðað árið 2010. Eins og áður segir er hollenskt með heimahöfn í Delfzijl. Edenborg við … Halda áfram að lesa Edenborg við bryggju á Húsavík

Samskip-Skaftafell og Sleipnir

Samskip-Skaftafell og Sleipnir. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Samskip-Skaftafell tekur hér kúrsinn út Eyjafjörð í gær og hafnsögubáturinn Sleipnir snýr aftur til hafnar eftir að hafa aðstoðað skipið við að komast út úr Fiskihöfninni. Samskip-Skaftafell var smíðað árið 2000 og er 101 metra langt og 19 metra breitt. Mælist 4,450 GT að stærð, siglir undir hollensku … Halda áfram að lesa Samskip-Skaftafell og Sleipnir

Keilir, nýtt skip Olíudreifingar

2946. Keilir. Ljósmynd Magnús Jónsson 2019. Keilir, nýtt skip Olíudreifingar, kom til Reykjavíkurhafnar á dögunum en hann var smíðaður hjá Akdeniz skipasmíðastöðinni í Tyrklandi. Skipið, sem mun leysa olíuskipið Laugarnes af hólmi, siglir undir íslenskum fána og er 378 brúttótonn að stærð. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

Wilson Mersin lætur úr höfn á Húsavík

Wilson Mersin ex Ramnes. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Ég tók nokkrar myndir nú síðdegis þegar Wilson Mersin lét úr höfn á Húsavík eftir að hafa lestað afurðir frá PCC á Bakka. Nánar má lesa um skipið í færslu hér að neðan sem birtist í dag. Wilson Mersin ex Ramnes. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Wilson Mersin … Halda áfram að lesa Wilson Mersin lætur úr höfn á Húsavík

Wilson Mersin í höfn á Húsavík

Wilson Mersin við Bökugarðinn. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Í morgun kom flutningaskipið Wilson Mersin til hafnar á Húsavík eftir siglingu frá Grundartanga. Skipið lagðist að Bökugarðinum þar sem fljótlega var hafist handa við að skipa út afurðum frá PCC á Bakka. Wilson Mersin var smíðað árið 1981 og siglir undir kýpverskum fána með heimahöfn í … Halda áfram að lesa Wilson Mersin í höfn á Húsavík

BBC Portugal í höfn á Húsavík 2008

BBC Portugal ex Mareike B. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2008. Flutningaskipip BBC Portugal kom til Húsavíkur með áburðarfarm í marsmánuði 2008. BBC Portugal hét áður Mareike B og var smíðað árið 2001. Það er 2.545 GT að stærð. Lengdin er 86 metrar og breidd þess er 12 metrar. Skipið hét Mareike B þegar til 2002 þegar … Halda áfram að lesa BBC Portugal í höfn á Húsavík 2008

Falksea við bryggju á Húsavík

Falksea við bryggju á Húsavík. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Eins og fram kom á síðunni í gær kom flutningaskipið Falksea til Húsavíkur í gær með saltfarm. Falksea er 90 metra langt og 14 metra breytt. Mælist 2,999 GT að stærð. Smíðað árið 2002 og er með heimahöfn í Stavanger. Falksea við Þvergarðinn. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson … Halda áfram að lesa Falksea við bryggju á Húsavík

Anna á Skjálfanda

Anna. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Flutningaskipið Anna kom til Húsavíkiur um kaffileytið í dag og voru þessar myndir teknar þá. Hún lagðist að Bökugarðinum þar sem skipað verður upp hráefnisfarmi fyrir PCC á Bakka. Anna er 126 metrar að lengd og 14,4 metrar á breidd. Mælist 5,044 GT að stærð. Smíðuð árið 2011. Anna siglir … Halda áfram að lesa Anna á Skjálfanda

Wilson Nantes á Húsavík

Wilson Nantes. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Wilson Nantes liggur nú við Bökugarðinn og losar hráefnisfarm til PCC á Bakka. Skipið var smíðað árið 2011 og siglir undir fána Möltu með heimahöfn í Walletta. Það er 123 metra langt og 17 metra breitt. Mælist 6,118 GT að stærð. Með því að smella á myndina er hægt … Halda áfram að lesa Wilson Nantes á Húsavík