Þórsnes við bryggju á Húsavík

2936. Þórsnes SH 109 ex Veidar 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2017. Línu- og netaskipið Þórsnes SH 109 liggur hér við bryggju á Húsavík í lok júlímánaðar árið 2017. Þórsnes hafði komið til heimahafnar í Stykkishólmi í júní sama ár en það var keypt notað frá Noregi. Eigandi Þórsnes ehf. í Stykkishólmi. Þórsnesið er 880 brúttótonna línu- … Halda áfram að lesa Þórsnes við bryggju á Húsavík

Grímsnes kemur að landi í gær

89. Grímsnes GK 555 ex Grímsnes BA 555. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2022. Grímsnes GK 555 kemur hér að landi í Grindavík í gær en báturinn er gerður út af Maron ehf. til netaveiða. Það var fínasta veður en þegar að norðanáttin lendir á móti krappri sunnan bárunni getur hann orðið ansi úfinn eins og sjá … Halda áfram að lesa Grímsnes kemur að landi í gær

Sighvatur í kröppum dansi

1416. Sighvatur GK 57 ex Sævík GK 257. Ljósmynd Jón Steinar 2022. Línuskipið Sighvatur GK 57 lét úr höfn í Grindavík í dag í blíðuveðri, norðan 6 metrum. En þegar að norðanáttin lendir á móti krappri sunnan bárunni getur hann orðið ansi úfinn eins og sjá má á þessum flottu myndum sem Jón Steinar tók. 1416. … Halda áfram að lesa Sighvatur í kröppum dansi

Kristinn Friðrik GK 58

102. Kristinn Friðrik GK 58 ex Siggi Bjarna GK 5. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Vélbáturinn Kristinn Friðrik GK 58 kemur hér að landi í Sandgerði á vetrarvertíðinni árið 2004. Báturinn var gerður út af Skipeyri ehf. og var með heimahöfn í Garðinum. Haukur Sigtryggur sendi eftirfarandi miða: 0102....Hrafn Sveinbjarnarson II. GK 10. TF-UY. Skipasmíðastöð: Mandal … Halda áfram að lesa Kristinn Friðrik GK 58

Erlingur í slipp í Neskaupstað

1379. Erlingur SF 65 ex Haförn EA 955. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Hér má sjá Erling SF 65 þar sem hann er í slipp í Neskaupstað sumarið 2004 en þegar þarna var komið við sögu var hann í eigu Skinneyjar-Þinganess hf. á Höfn. Hér má lesa sögu bátsins en hann hét upphaflega Kópanes BA 99. … Halda áfram að lesa Erlingur í slipp í Neskaupstað

Valdimar SH 106

1487. Valdimar SH 106 ex Alli Júl ÞH 5. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2003. Rækjubáturinn Valdimar SH 106 frá Grundarfirði liggur hér við bryggju á Húsavík sumartið 2003. Valdimar, sem var í eigu Snæfells ehf., hét upphaflega Ásbjörg ST 9 og var smíðaður í Stykkishólmi árið 1977.Lesa má um sögu bátsins hér. Með því að smella … Halda áfram að lesa Valdimar SH 106

Þorvarður Lárusson SH 129

185. Þorvarður Lársusson SH 129 ex Sigþór ÞH 100. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Rækjubáturinn Þorvarður Lárusson SH 129 liggur hér í höfn á Dalvík í júníbyrjun árið 2004. Hann var í eigu Snæfells ehf. sem keypti hann í ársbyrjun 2002. Upphaflega Sigurpáll GK 375 sem var smíði no.46. frá Marstrands Mekaniska Verkstad A/B. í Marstrand … Halda áfram að lesa Þorvarður Lárusson SH 129

Stokksey ÁR 40

1037. Stokksey GK 40 ex Dagfari GK 70. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2003. Stokksey ÁR 40 kemur að bryggju á Húsavík vorið 2003 en báturinn var á netum ef minnið er rétt. Upphaflega Dagfari ÞH 70 smíðaður fyrir Barðann hf. á Húsavík í Boizenburg í Austur-Þýskalandi.  Hann kom til heimahafnar á Húsavík 17, maí árið 1967. … Halda áfram að lesa Stokksey ÁR 40