Múlafoss og Eyborg

Múlafoss - 2190.Eyborg EA 59. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér gefur að líta Múlafoss og Eyborgina úr Hrísey við hafnargarðinn á Húsavík sem kallaður var en heitir Norðurgarður. Myndin var tekin 1994 eða 1995 en Eyborg var á úthafsrækju og rótfiskaði undir skipsstjórn Eiríks Sigurðssonar. Ef ég man rétt. Með því að smella á myndina er … Halda áfram að lesa Múlafoss og Eyborg

Hrafn Sveinbjarnarson II GK 10

93. Hrafn Sveinbjarnarson II GK 10 ex Stígandi VE 77. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hrafn Sveinbjarnarson II GK 10 er hér í Grindavíkurhöfn og menn eitthvað að vinna í trollinu. Þorbjörn hf. í Grindavík keypti bátinn frá Vestmannaeyjum árið 1979 og nefndi Hrafn Sveinbjarnarson II GK 10. Hrafn Sveinbjarnarson II var yfirbyggður árið 1982 og fór … Halda áfram að lesa Hrafn Sveinbjarnarson II GK 10

Bjarni Gíslason SF 90

1324. Bjarni Gíslason SF 90 ex Ottó Wathne NS 90. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Ottó Wathne NS 90 var seldur til Hornafjarðar árið 1981 þar sem hann fékk nafnið Bjarni Gíslason SF 90. Báturinn var smíðaður hjá Vélsmiðju Seyðisfjarðar hf. árið 1973 og er 101 brl. að stærð. Síðasta nafn bátsins á íslenskri skipaskrá var Halla … Halda áfram að lesa Bjarni Gíslason SF 90

Hugborg SH 87

1282. Hugborg SH 87 ex Haffari RE 126. Ljósmynd Alfons Finnsson. Á þessari mynd frá Fonsa eru kallarnir á Hugborginni SH 87 á dragnótaveiðum við Snæfellssnes. Báturinn, sem var 29 brl. að stærð, hét upphaflega Haffari RE 126 og var smíðaður árið 1972 hjá Trésmíðaverkstæði Austurlands hf. á Fáskrúðsfirði. Árið 1973 var báturinn seldur til … Halda áfram að lesa Hugborg SH 87

Blíðfari GK 275

1979. Blíðfari GK 275 ex Faxafell GK 110. Ljósmynd Alfons Finnsson. Blíðfari GK 275 kemur hér að landi í Ólafsvík en þetta nafn bar báturinn árin 1993 til ársins 1996. Blíðfari hét upphaflega Faxafell GK 110 og var með heimahöfn í Vogum á Vatnsleysuströnd. Hann var smíðaður í Vélsmiðju Jónasar Þórðarsonar í Garðabær árið 1989.  … Halda áfram að lesa Blíðfari GK 275

Mímir RE 3

1694. Mímir RE 3. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1986. Mímir RE 3 kemur hér til hafnar í Reykjavík um árið báturinn var smíðaður árið 1985 hjá Mánavör á Skagaströnd. Mímir, sem var 15 brl. að stærð, var smíðaður fyrir Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið og notaður sem skólaskip. Mímir RE 3 fórst í Hornafjarðarósi 28. október árið 1991. Honum … Halda áfram að lesa Mímir RE 3