Bjarnarey NS 7

198. Bjarnarey NS 7. Ljósmynd Hannes Baldvinsson Siglufirði. Hérna sjáum við Bjarnarey NS 7 á mynd Hannesar Baldvinssonar sem hann tók á Siglufirði á síldarárunum. Bjarnarey var einn tappatogaranna svokölluðu sem smíðaðir voru fyrir Íslendinga í A-Þýskalandi á árunum 1958-9. Í Degi sagði svo frá þann 16. desember 1959: Hingað til Akureyrar kom á mánudaginn … Halda áfram að lesa Bjarnarey NS 7

Gunnar Bjarnason SH 122

2462. Gunnar Bjarnason SH 122 ex Ósk KE 5. Ljósmynd Alfons Finnsson. Gunnar Bjarnason SH 122 er einn Kínabátanna svokölluðu sem smíðaðir voru árið 2001 í Dalian skipasmíðastöðinni í samnefndri borg í Kína. Gunnar Bjarnason SH 122 hét upphaflega Rúna RE 150 frá Reykjavík en í janúar árið 2005 fær hann nafnið Ósk KE 5 … Halda áfram að lesa Gunnar Bjarnason SH 122

Steinunn SH 167

1134. Steinunn SH 167 ex Ingibjörg RE 10. Ljósmynd Alfons Finnsson. Dragnótabáturinn Steinunn SH 167 kemur hér að landi í Ólafsvík, myndina tók Alfons vinur minn. Steinunn hét upphaflega Arnfirðingur II GK 412 og var smíðaður í Stálvík í Garðabæ 1970. Eigandi Arnfirðings II frá því í ársbyrjun 1971 var Arnarvík hf. í Grindavík . Þegar … Halda áfram að lesa Steinunn SH 167

Ólafur Bjarnason SH 137

1304. Ólafur Bjarnason SH 137. Ljósmynd Alfons Finnsson. Ólafur Bjarnason SH 137 var smíðaður hjá Þorgeir & Ellert hf. á Akranesi árið 1973. Það var Valafell hf. í Ólafsvík sem lét smíða bátinn og hefur átt hann og gert út alla tíð. Báturinn var skutlengdur um árið og þá hefur verið byggt yfir hann og … Halda áfram að lesa Ólafur Bjarnason SH 137

Þórsnes SH 109

2936. Þórsnes SH 109 ex Veidar 1. Ljósmynd Óskar Franz 2017. Þórsnes SH 109 kom til heimahafnar í Stykkishólmi í júnímánuði 2017 en það var keypt notað frá Noregi. Þórsnesið er 880 brúttótonna línu- og netaskip. 43,3 metrar á lengd og 10,5 metrar á breidd. Skipið var smíðað árið 1996 og er því mun yngra en gamla Þórsnesið … Halda áfram að lesa Þórsnes SH 109

Áramótakveðja Skipamynda.com

1105. Reynir GK 177 á brennu Húsvíkinga árið 2007. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Skipamyndir.com óskar öllum þeim sem sækja síðuna heim gleðilegs nýs árs með þökk fyrir innlitið á því gamla sem nú er liðið í aldanna skaut. Meðfylgjandi mynd var tekin á Gamlárskvöld árið 2007 við brennu Húsvíkinga sem var nokkuð vegleg það árið. Þarna … Halda áfram að lesa Áramótakveðja Skipamynda.com