2161. Sigurvon ÁR 121 ex Sigurvon RE 11. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Handfærabáturinn Sigurvon ÁR 121 kemur hér til Grindavíkur í gær en þar var fyrsta heimahöfn bátsins. Báturinn hét upphaflega Hallvarður á Horni GK 111 og var smíðaður 1992 hjá Mótun í Hafnarfirði fyrir Hafstein Sæmundsson útgerðarmann í Grindavík. Hefur í gegnum tíðina … Halda áfram að lesa Sigurvon ÁR 121
Author: Hafþór Hreiðarsson
Bergur og Vestmannaey lönduðu fullfermi í Grindavík í gær
2964. Bergur VE 44 ex Bergey VE 144 - 2954. Vestmannaey VE 54. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Vestmannaeyjaskipin Bergur VE 44 og Vestmannaey VE 144 lönduðu báðir fullfermi í Grindavík í gær. Byrjað var að landa úr Bergi klukkan tólf á hádegi og svo Vestmannaey afgreidd í kjölfarið. Megnið af aflanum fór til vinnslu … Halda áfram að lesa Bergur og Vestmannaey lönduðu fullfermi í Grindavík í gær
Ásdís ÞH 136
2783. Ásdís ÞH 136 ex Ingunn Sveinsdóttir AK 91. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Grásleppubáturinn Ásdís ÞH 136 hefur fiskað vel í vikunni og hér er Ingólfur H. Árnason að færa hann til í höfninni á Húsavík í gær. Ásdís ÞH 136 hét upphaflega Kristján ÍS 110 en þegar báturinn var keyptur til Húsavíkur árið 2015 hét … Halda áfram að lesa Ásdís ÞH 136
Hildur SH 777 kemur að landi
3047. Hildur SH 777 ex Pia Glanz L. 654. Ljósmynd Vigfús Markússon 2025. Vigfús Markússon skipstjóri á Tjaldi SH 270 tók á dögunum þessa mynd af dragnótabátnum Hildi SH 777 þar sem hann var að koma að landi á Rifi. Hér má lesa nánar um bátinn sem Hraðfrystihús Hellisands keypti frá Danmörku í fyrra. Með því að smella … Halda áfram að lesa Hildur SH 777 kemur að landi
Fúsi SH 162
1849. Fúsi SH 162 ex Fúsi SH 161. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Fúsi SH 162 kemur hér að landi í Grindavík vorið 2004 en síðar sama ár fékk báturinn nafnið Grímsnes GK 555. Upphaflega hét báturinn Neptúnus NS 8 og var smíðaður árið 1978 í Vélsmiðju Seyðisfjarðar. Neptúnus var gerður út frá Seyðisfirði til ársins … Halda áfram að lesa Fúsi SH 162
Beta GK 36
2764. Beta GK 36 ex beta VE 36. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Línubáturinn Beta GK 36 kemur hér að landi í Sandgerði vorið 2021. Beta GK 36, sem er af gerðinni Cleopatra 38, var upphaflega VE 36 og smíðuð hjá Trefjum árið 2008 fyrir Útgerðarfélagið Má ehf. í Vestmannaeyjum. Árið 2019 varð Beta GK 36 … Halda áfram að lesa Beta GK 36
Sunna Líf dregur netin
1523. Sunna Líf GK 61 ex Sunna Líf KE 71. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Netabáturinn Sunna Líf GK 61 var að draga netin fyrir utan Straumsvík sl. laugardag þegar Jón Steinar tók þessar myndir sem nú birtast. Sunna Líf hét upphaflega Dagný ÞH 203 frá Grenivík og var smíðuð árið 1978 hjá Skipasmíðastöð Guðmundar … Halda áfram að lesa Sunna Líf dregur netin
Þórunn Sveinsdóttir í smíðum
2020. Þórunn Sveinsdóttir VE 401. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1991. Hér gefur að líta Þórunni Sveinsdóttur VE 401 í smíðum hjá Slippstöðinni á Akureyri en hún var afhent sumarið 1991. Skipið, sem var 480 BT að stærð, var smíðað fyrir Ós ehf. í Vestmannaeyjum sem gerði það út til ársins 2007. Þá keypti Ísfélag Vestmannaeyja hf. … Halda áfram að lesa Þórunn Sveinsdóttir í smíðum
Auður Vésteins
2888. Auður Vésteins SU 88. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Jón Steinar tók þessar myndir af línubátnum Auði Vésteins SU 88 í dag þegar báturinn kom til hafnar í Grindavík. Auður Vésteins SU 88 er af gerðinni Cleopatra 50, smíðaður hjá Trefjum árið 2014. 2888. Auður Vésteins SU 88. Ljósmyndir Jón Steinar Sæmundsson 2025. Með því … Halda áfram að lesa Auður Vésteins
Allir átt heimahöfn á Húsavík
1487. Máni - 1979. Haförn ÞH 26 - 2262. Sóley Sigurjóns GK 200. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Þess mynd var tekin á Akureyri um helgina og sýnir tvo báta og einn togara sem eiga það sameiginlegt að hafa átt heimahöfn á Húsavík. Þetta eru Máni frá Dalvík, Haförn ÞH 26 og Sóley Sigurjóns GK 200 … Halda áfram að lesa Allir átt heimahöfn á Húsavík









