María Júlía á leið í slippinn

151. María Júlía. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. María Júlía er í þessum skrifuðu orðum að verða kominn upp í slipp á Húsavík en hún fór í sleðann á kvöldflóðinu. María Júlía hefur legið við bryggju á Húsavík sl. 11 mánuði en er s.s komin í slipp. Með því að smella á myndina er hægt að … Halda áfram að lesa María Júlía á leið í slippinn

Hafdís SK 4

2462. Hafdís SK 4 ex Gunnar Bjarnason SH 122. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Dragnótabáturinn Hafdís SK 4 frá Sauðárkróki kemur hér til hafnar á Húsavík í kvöld en það er Fisk Seafood ehf. sem gerir hann út. Hafdís SK 4 hét áður Gunnar Bjarnason SH 122 frá Ólafsvík og var báturinn smíðaður í Kína árið 2001. Upphaflega bar hann … Halda áfram að lesa Hafdís SK 4

Bárður SH 81

2965. Bárður SH 81. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Dragnótabáturinn Bárður SH 81 frá Ólafsvík kemur hér til hafnar á Húsavík síðdegis í dag eftir veiðar á Skjálfanda. Bárður SH 81 var smíðaður fyrir Bárð SH 81 ehf. og fór smíði bátsins fram í Bredgaard bátasmiðjunni í Rødby í Danmörku. Bárður kom til landsins í nóvembermánuði 2019. Bárður SH … Halda áfram að lesa Bárður SH 81

Tómas Þorvaldsson GK 10

2173. Tómas Þorvaldsson GK 10 ex  ex Sisimiut GR 6-500. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Frystitogarinn Tómas Þorvaldsson GK 10 kom til löndunar í Grindavík í vikunni og tók Jón Steinar þessar myndir þá. Grindavík Seafod ehf sem er eitt af þremur fyrirtækjum sem varð til þegar Þorbirni hf í Grindavík var skipt upp eignast skipið í desember … Halda áfram að lesa Tómas Þorvaldsson GK 10

Norma Mary á Akureyri

IMO 8718885. Norma Mary A 883 ex 1976. Snæfugl SU 20. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér liggur frystitogarinn Norma Mary A 883 við bryggju um árið en upphaflega hét hann Snæfugl SU 20. Snæfugl smíðaður hjá Flekkefjord Slipp & Maskinfabrikk A/S í Noregi fyrir Skipaklett hf. á Reyðarfirði. Togarinn kom í fyrsta skipti til heimahafnar á Reyðarfirði … Halda áfram að lesa Norma Mary á Akureyri

Huginn VE 55 með 1100 tonn af makríl

2411. Huginn VE 55. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2025. Huginn VE 55 kom til Vestmannaeyja í gærmorgun með um 1100 tonn af makríl og tók Tryggvi Sig þessa mynd þá. Það er Vinnslustöðin sem gerir hann út en um skipið sem var smíðað í Chile árið 2001. má lesa hér. Með því að smella á myndina er … Halda áfram að lesa Huginn VE 55 með 1100 tonn af makríl