1012. Örn KE 13 ex Örn SK 50. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér leggur loðnuskipið Örn KE 13 í hann um árið eftir að hafa legið í höfn á Húsavík vegna brælu á miðunum. Margir Húsvíkingar í áhöfn, m.a skipstjórinn Sigurður Sigurðsson. Þarna er búið að skipta um brú á Erninum en það var gert hjá … Halda áfram að lesa Örn KE 13
Author: Hafþór Hreiðarsson
Jólalegt á Grandanum
2895. Viðey RE 50 - 2890. Akurey AK 10. Ljósmynd Magnús Jónsson 2025. Það er orðið jólalegt á að líta í höfnum landsins og hér er mynd sem Maggi Jóns tók Reykjavík í kvöld og sýna Viðey RE 50 og Akurey AK 10 ljósum prýddar þar sem þær liggja við Norðurgarðinn. Með því að smella … Halda áfram að lesa Jólalegt á Grandanum
Örn KE 13 í Krossanesi
1012. Örn KE 13 ex Örn SK 50. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér liggur loðnuskipið Örn KE 13 við bryggju í Krosssanesi um árið að lokinni löndun. Örn var upphaflega RE 1 og gerður út af Hinu almenna fiskveiðifélagi hf. í Reykjavík sem lét smíða hann í Noregi og kom hann til landsins í ágústmánuði árið … Halda áfram að lesa Örn KE 13 í Krossanesi
Jóhanna Gísladóttir GK 357
2677. Jóhanna Gísladóttir GK 357 ex Bergur VE 44. Ljósmynd Jón Steinar 2025. Jón Steinar tók þessa myndasyrpu í dag þegar Jóhanna Gísladóttir GK 357 kom af Austfjarðarmiðum til Grindavíkur úr síðasta túr fyrir jól. Aflinn var um 180 kör sem gerir um 57 tonn og var uppistaðan í aflanum þorskur. Það voru austan 12 … Halda áfram að lesa Jóhanna Gísladóttir GK 357
Nökkvi ÞH 27
1622. Nökkvi ÞH 27 ex Þorvarður Lárusson SH 129. Ljósmynd Vigfús Markússon. Hér gefur að líta Nökkva ÞH 27 toga á rækjumiðunum um árið en hann var gerður út frá Grenivík. Upphaflega hét Nökkvi, sem smíðaður var á Ísafirði, Guðlaugur Guðmundsson SH 97 frá Ólafsvík og síðan lengi vel Smáey VE 144. Hér má lesa … Halda áfram að lesa Nökkvi ÞH 27
Jökull ÞH 299
2991. Jökull ÞH 299 ex ex Nanoq GR 1-1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Jökull ÞH 299 kom til Húsavíkur í gær eftir að hafa legið um tíma á Akureyri vegna bilunar. Jökull var smíðaður í Noregi árið 1996 og er 962 GT að stærð. Lengd hans er 44 metrar og breiddin 10 metrar. Hann er útbúinn til línu- … Halda áfram að lesa Jökull ÞH 299
Vilhelm Þorsteinsson EA 11
2982. Vilhelm Þorsteinsson EA 11. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Hér gefur að líta Samherjaskipið Vilhelm Þorsteinsson EA 11 við bryggju í heimahöfn sinni Akureyri. Jólaserían komin upp fyrir nokkrum dögum en myndin var tekin síðdegis í dag og ekki var vindinum fyrir að fara við pollinn. Með því að smella á myndina er hægt að … Halda áfram að lesa Vilhelm Þorsteinsson EA 11
Árbakur EA 5
2154. Árbakur EA 5 ex Árbakur EA 308. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Skuttogarinn Árbakur EA 5 leggur hér upp í veiðiferð frá Akureyri um árið. Árbakur, sem áður hét Natsek, var smíðaður fyrir Grænlendinga árið 1980 hjá Örskov Christensens Staalskibsvært A/S, Frederikshavn í Danmörku, og var smíðanúmer 112 hjá stöðinni. Skipið var hannað af Nordvestconsult A/S og smíðað … Halda áfram að lesa Árbakur EA 5
Brimir ÞH 10
2155. Brimir ÞH 10 ex Sléttunúpur ÞH 273. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Rækjutogarinn Brimir ÞH 10 kemur hér að landi á Húsavík um árið en hann var 34,75 metrar að lengd, smíðaður í Danmörku 1979. Togarinn var smíðaður fyrir Grænlendinga og hét upphaflega hét Nataarnaq og síðar Niisa. Árið 1991 var togarinn keyptur til Íslands og kom til Ísafjarðar á … Halda áfram að lesa Brimir ÞH 10
Þórir VE 16
290. Þórir VE 16 ex Sigurjón Árnlaugsson GK 16. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Þórir VE 16 hét upphaflega Dagur RE 71 og var smíðaður í Danmörku árið 1946. Báturinn, sem var 65 brl. að stærð var seldur til Hafnarfjarðar árið 1954 þar sem hann fékk nafnið Ársæll Sigurðsson GK 320. Árið 1964 var báturinn seldur innanbæjar … Halda áfram að lesa Þórir VE 16









