
Sylvía kemur hér til hafnar í gærkveldi eftir hvalaskoðunarferð á Skjálfanda en það er Gentle Giants sem gerir Sylvíu út.
Hún var smíðuð í Bátasmiðjunni Vör hf. á Akureyri árið 1976 og hét upphaflega Sigrún ÞH 169 með heimahöfn á Grenivík.
Sigrún ÞH 169 var í eigu Sævars h/f á Grenivík.
Árið 1978 er báturinn seldur til Siglufjarðar þar sem hann fær nafnið Rögnvaldur SI 77. Haustið 1980 er hann seldur til Reykjavíkur þar sem hann fékk nafnið Reykjaborg RE 25.
Reykjaborg fær nafnið Von BA 33 1998, ári síðar heitir hann Hrímnir ÁR 51 með heimahöfn á Eyrarbakka. Í apríl árið 2003 fær hann nafnið Harpa GK 40 og árið 2005 fær hann nafnið Björgvin ÍS 468. Það er svo snemma sumars 2007 sem hann fær nafnið Sylvía sem hann ber enn þann dag í dag.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution