Álaborg ÁR 25

1359. Álaborg ÁR 25 ex Sólborg SH 207. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Hér kemur Álaborg ÁR 25 að landi í Þorlákshöfn um árið en það var Fiskisver ehf. sem gerði Álaborgina út en hún var með heimahöfn á Eyrarbakka.

Báturinn var smíðaður á Ísfirði árið 1974 og hét upphaflega Sturlaugur II ÁR 7. Hann var 138 brl. að stærð, búinn 750 hestafla caterpillar aðalvél. 

Sama ár var báturinn seldur austur á Fáskrúðsfjörð þaðan sem hann var gerður út í um tuttugu ár undir nafninu Sólborg SU 202. Sólborg var yfirbyggð árið 1985.

Árið 1995 varð Sólborg, samkvæmt vef Fiskistofu, RE 270 og ári síðar SH 207. Það sama ár, 1996, var báturinn seldur Fiskiveri og fékk nafnið Álaborg ÁR 25.

Snemma árs 2007 kaupir Bergur-Huginn í Vestmannaeyjum Álaborgina og selur hana síðan til Hollands um mitt sumar.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd