
Veðráttan hefur verið erfið til sjósóknar á smærri bátum undanfarið en um helgina gaf loksins á sjóinn fyrir Fjølni GK 757 sem rær frá Grindavík.
Hann réri síðast 28. mars síðastliðinn, en síðan hefur verið bræla þangað til á laugardaginn.
Jón Steinar tók myndir af Fjølni þar sem hann var á landleið en aflinn var um 11 tonn, uppistaðan þorskur, langa og ýsa.





Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution