Andey ÁR 10

2405. Andey ÁR 10 ex Andey HU 10. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2012.

Andey ÁR 10 kemur hér að landi í Sandgerðu sumarið 2012 en hún var með heimahöfn á Stokkseyri.

Báturinn, sem er 25 BT. að stærð, var smíðaður hjá Storebö Mek. Verksted í Kristiansund í Noregi árið 1983 og hét upphaflega Fjørdfangst.

Fjørdfangst var keyptur til Íslands árið 1999 og fékk báturinn nafnið Skarðanúpur BA en ári síðar fékk hann nafnið Margrét AK 39.

Frá árinu 2001 hefur hann borið nöfnin Tumi BA 900, Addi á Gjábakka VE 220, Háborg HU 10, Andey HU 10, Andey ÁR 10, Andey GK 66, Andey GK 4 og Andey GK 91.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution.

Færðu inn athugasemd