Ársæll Sigurðsson HF 80

1097. Ársæll Sigurðsson HF 80 ex Guðrún Björg ÞH 355. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Ársæll Sigurðsson HF 80 hét upphaflega Sæborg ÞH 55 og var smíðuð árið 1970 hjá Bátaverkstæði Gunnlaugs og Trausta á Akureyri.

Sæborg fékk nafnið Guðrún Björg ÞH 355 árið 1977 þegar ný og stærri Sæborg leysti hana af hólmi.

Guðrún Björg var seld Viðari Sæmundssyni í Hafnarfirði árið 1988 og nefndi hann bátinn Ársæl Sigurðsson HF 80.

Ársæll Sigurðsson HF 80 fékk á sig brot í innsiglingunni til Grindavíkur 21 mars 1992, lagðist á hliðina og sökk á skömmum tíma.

Áhöfnin á Ólafi GK 33 bjargaði áhöfn bátsins en lesa má um atburðinn hér.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution.

Færðu inn athugasemd