Valbjörn ÍS 307

1686. Valbjörn ÍS 307 ex Gunnbjörn ÍS 302. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2012. Rækjubáturinn Valbjörn ÍS 307 kemur hér til hafnar á Húsavík í septembermánuði árið 2012. Það spáði brælu og bátarnir leituðu hafnar. Valbjörn var smíðaður í Njarðvík árið 1984 og hét upphaflega Haukur Böðvarsson ÍS 847. Báturinn, sem var 57 brl. að stærð og … Halda áfram að lesa Valbjörn ÍS 307

Haförn og Naustavík

1334. Haförn EA 155 - 1417. Naustavík EA 151 ex Sólrún EA 251. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér liggja saman við bryggju á Akureyri síðustu tveir eikarbátarnir sem Skipasmíðastöð KEA smíðaði. Haförn EA 155 er sá sem liggur við bryggjuna og utan á honum Naustavík EA 151 sem upphaflega hét Sólrún EA 251. Báðir bátarnir smíðaðir … Halda áfram að lesa Haförn og Naustavík

Njörður í kvöldsólinni

7311. Njörður ÞH 444 ex Hanna Ellerts SH 4. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Þessa mynd af strandveiðibátnum Nirði ÞH 444 tók ég í kvöldsól gærdagsins þar sem hann lá við bryggju á Húsavík. Njörður hét áður Hanna Ellerts SH 4 og var smíðaður hjá Bátasmiðju Guðmundar í Hafnarfirði árið 1991. Með því að smella á … Halda áfram að lesa Njörður í kvöldsólinni

Garðar í Húsavíkurslipp

260. Gardar ex Sveinbjörn Jakobsson SH 10. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Hvalaskoðunarbáturinn Garðar baðar sig hér í kvöldsólinni þar sem hann stendur upp í Húsavíkurslipp. Þar hefur báturinn verið undarfarnar vikur í skveringu fyrir komandi sumarvertíð en það er Norðursigling sem gerir bátinn út. Garðar hét upphaflega og lengst af Sveinbjörn Jakobsson SH 10 frá … Halda áfram að lesa Garðar í Húsavíkurslipp

Hulda Björnsdóttir GK 11 á útleið frá Grindavík

3027. Hulda Björnsdóttir GK 11. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Jón Steinar tók þessar myndir af togaranum Huldu Björnsdóttur GK 11 þegar hún hélt til veiða frá Grindavík í dag. Það er útgerðarfélagið Ganti ehf í Grindavík sem á og gerir togarann út en hann var smíðaður hjá skipasmíðastöðinni Astilleros Armon í Gijon á Spáni … Halda áfram að lesa Hulda Björnsdóttir GK 11 á útleið frá Grindavík

Ronja Carrier

IMO 9452311. Ronja Carrier. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Seiðaflutningaskipið Ronja Carrier kom til Húsavíkur í dag en stoppaði stutt og er í þessum skrifuðu orðum á stími austur að Kópaskeri. Ronja Carrier var smíðuð í Aas-skipasmíðastöðinni í Vestnes, Noregi árið 2010 og hét upphaflega Oydrott. Skipið, sem siglir undir norskum fána og er með heimahöfn … Halda áfram að lesa Ronja Carrier