Hulda Björnsdóttir GK 11

3027. Hulda Björnsdóttir GK 11. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Jón Steinar tók þessar myndir af Huldu Björnsdóttur GK 11 í morgun þegar hún kom til löndunar í Grindavík. Aflinn var um 100 tonn. Uppistaðan þorskur, ýsa og karfi. Það er útgerðarfélagið Ganti ehf í Grindavík sem á og gerir togarann út en hann var … Halda áfram að lesa Hulda Björnsdóttir GK 11

World Traveller var á Húsavík í dag

IMO 9904807. World Traveller. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Skemmtiferðaskipið World Traveller var á Húsavík og var þessi mynd tekin eftir að skipið lagði úr höfn um miðjan dag. Skipið var smíðað árið 2022 og siglir undir Portúgölskum fána með heimahöfn á Madeira. Lengd þess er 126 metrar, breiddin 19 metrar og það mælist 9,930 GT … Halda áfram að lesa World Traveller var á Húsavík í dag

Silver Wind

IMO 8903935. Silver Wind. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Skemmtiferðaskipið Silver Wind kom inn Skjálfandann í morgun og lagðist við akkeri framundan Húsavík. Skipið, sem var smíðað á Ítalíu árið 1995, er 162 metrar að lengd, 26 metra breitt og mælist 17.235 GT að stærð. Það siglir undir fána Bahama með heimahöfn í Nassau. Með því … Halda áfram að lesa Silver Wind

Skinney í slipp á Akureyri

2732. Skinney SF 20. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Skinney SF 20 frá Hornafirði er hér í slippnum á Akureyri í dag nýmáuð og fín. Skinney, var líkt og systurskipið Þórir SF 77 nú Birtingur NK 119,  smíðuð hjá Ching Fu Shipbuilding co.,LTD skipasmíðastöðinni í Taiwan árið 2008 fyrir Skinney-Þinganes hf. á Höfn í Hornafirði. Þau … Halda áfram að lesa Skinney í slipp á Akureyri

Seljavík BA 112

1210. Seljavík BA 112 ex Björn EA 220. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2001. Seljavík BA 11 sem hér liggur við bryggju í Reykjavík hét upphaflega Magnús EA 25 og hafði heimahöfn í Grímsey. Báturinn var smíðaður árið 1972 í Bátalóni fyrir Sigfús Jóhannesson. Árið 1991 fékk báturinn nafnið Björn EA 22 og var áfram með heimahöfn … Halda áfram að lesa Seljavík BA 112