2354. Valdimar GK 195 ex Vesturborg GK 195. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Samkvæmt vef Fiskistofu hefur Valdimar GK 195 fengið nafnið Grímsi GK 555 með heimahöfn í Njarðvík. Kaupandinn er Admiral ehf sem er fyrirtæki í eigu Sigvalda Eiríks Hólmgrímssonar. Báturinn var smíðaður í Noregi 1982 og lengdur 1987. Valdimar ehf. í Vogum á Vatnsleysuströnd … Halda áfram að lesa Valdimar hefur fengið nafnið Grímsi GK 555
Month: nóvember 2025
Hraunsvík GK 68
727. Hraunsvík GK 68 ex Gissur ÁR 6. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hraunsvík GK 68 kemur hér að landi í Grindavík um árið en hún hét upphaflega Akurey SF 52 og var smíðuð í Danmörku 1956. Akurey hét eftirfarandi nöfnum: Akurey SF 52 til 1962. Rán SU 58 til 1967. Gissur ÁR 6 til 1970 og síðan Hraunsvík … Halda áfram að lesa Hraunsvík GK 68
Höfrungur III AK 250
1902. Höfrungur III AK 250 ex Polarborg II. Ljósmynd Vigfús Markússon. Höfrungur III AK 250 var keyptur til Íslands frá Færeyjum og kom landsins í febrúar 1992. Höfrungur III hét áður Polarborg II og var það Haraldur Böðvarsson hf. á Akranesi sem keypti skipið. Togarinn var smíðaður árið 1988 hjá Sterkoder Mek. Verksted A/S í … Halda áfram að lesa Höfrungur III AK 250
Erling KE 140
2986. Erling KE 140 ex Mars RE 270. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Jón Steinar tók þessar myndir sl. sunnudag af netabátnum Erling KE 140 þar sem hann var að veiðum við Garðskaga. Um Erling má nánar lesa hér og skoða fleiri myndir en Saltver ehf. á bátinn og gerir út. 2986. Erling KE 140 ex Mars … Halda áfram að lesa Erling KE 140
Björn EA 220
1540. Björn EA 220 ex Bresi AK 101. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Björn EA 220 úr Grímsey kemur hér að landi á Húsavík um árið en þar átti báturinn eftir að verða gerður út um árabil. Upphaflega hét báturinn, sem smíðaður var í Noregi 1979, Gulaþing RE 126, en hann er tæplega 8 brl. að stærð. … Halda áfram að lesa Björn EA 220
Tjaldanes GK 525
239. Tjaldanes GK 525 ex Kristbjörg ÍS 177. Ljósmynd Vigfús Markússon. Tjaldanes GK 525 hét upphaflega Fróðaklettur GK og var smíðað hjá Ankerlökker Verft A/S í Florö í Noregi 1964. Útgerðarfélag Skagfirðinga h/f á Sauðárkróki keypti bátinn árið 1968 og fékk hann nafnið Drangey SK 1. Seldur Vestra h/f á Pareksfirði árið 1972 og þar … Halda áfram að lesa Tjaldanes GK 525
Lodario
9690676. Lodairo ex Kirkella. Ljósmynd Magnús Jónssoon 2025. Maggi Jóns tók þessa mynd af spænska togaranum Lodario í vikunni þar sem hann lá við bryggju í Sundahöfn. Lodario, sem er með heimahöfn í Vigo á Norður-Spáni, var smíðaður í Tyrklandi árið 2015 og hét upphaflega Kirkella frá Hull. Með því að smella á myndina er … Halda áfram að lesa Lodario
Haukafell SF 111
2289. Haukafell SF 111. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Haukafell SF 111 var smíðað hjá Trefjum í Hafnarfirði árið 1998 og er af gerðinni Cleopatra 38. Báturinn, sem er 11,98 brl. að stærð, var seldur til Grindavíkur árið 2001 þar sem hann fékk nafnið Stakkavík GK 45. Síðar sama ár fékk báturinn nafnið Huld GK 45. Frá … Halda áfram að lesa Haukafell SF 111
Apríl BA 25
6036. Apríl BA 25 ex Sigrún GK 81. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Handfærabáturinn Apríl BA 25 kemur hér að landi á Patreksfirði sumarið 2020. Báturinn var smíðaður hjá Skel hf. árið 1979 og hét upphaflega Vöggur NK 3. Árið 1984 fékk hann nafnið Felix ÞH 261 með heimahöfn á Húsavík og ári síðar er báturinn … Halda áfram að lesa Apríl BA 25
Guðrún Ósk GK 81
6036. Guðrún Ósk GK 81 ex Svalur SH 274. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Guðrún Ósk GK 81, sem kemur hér til hafnar í Sandgerðu um árið, heitir í dag Apríl BA 25 og er með heimahöfn á Patreksfirði. Báturinn var smíðaður hjá Skel hf. árið 1979 og hét upphaflega Vöggur NK 3. Árið 1984 fékk hann … Halda áfram að lesa Guðrún Ósk GK 81









