
Örn RE 1 er hér á síldarmiðunum um árið, ca. 1967-1968 en myndina tók Hreiðar Olgeirsson þá skipverji á Dagfara ÞH 70.
Örn RE 1 var gerður út af Hinu almenna fiskveiðifélagi hf. í Reykjavík sem lét smíða hann í Noregi og kom hann til landsins í ágústmánuði árið 1966.
Örn RE 1 var seldur norður á Hofsós árið 1971 og var SK 50. Árið 1973 kaupa Örn og Þorsteinn Erlingssynir Örninn sem varð þá KE 13 og heimahöfnin Keflavík.
Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution
Ef ég man rétt var Seyðisfjörður fyrsta höfn sem Örn kom ì hér á landi.
Líkar viðLíkar við