Svanborg VE 52

1320. Svanborg VE 52 ex Leó VE 400. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson.

Svanborg VE 52 var 12 brl. að stærð og smíðuð á Seyðisfirði árið 1973 fyrir Bjarg h/f þar í bæ.

Báturinn bar upphaflega nafnið Þórir Dan NS 16.

Hann var seldur Gunnari Egilssyni í Bolungarvík árið 1974 og hélt hann nafninu en varð ÍS 166.

Útgerðarfélagið Dúfan á Sauðárkróki keypti bátinn árið 1979 og varð hann við það Þórir SK 16

Hann var síðar í eigu Þóris s/f á Sauðárkróki en var seldur 1996 til Vestmannaeyja þar sem hann fékk nafnið Leó VE 1 og síðar VE 400. Eigandi Steingrímur Sigurðsson.

Árið 2000 er hann kominn í eigu Þrídranga ehf. og fær nafnið Svanborg VE 52.

Það nafn bar báturinn þar til yfir lauk en Svanborg VE 52 sökk eftir að leki kom að henni 24. maí árið 2004, 3 sjm. austur af Bjarnarey. Mannbjörg varð.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can wiew them in higher resolution

1 athugasemd á “Svanborg VE 52

  1. Byggður ì Skipasmíðastöð Seyðisfjarðar 1973 þar voru byggðir margir trébátar sem allir reyndust vel enda vel byggðir,það var mikið fiskað á þóri Dan þann stutta tíma sem hann var hérna á Seyðisfirði.

    Líkar við

Skildu eftir svar við Orri Hætta við svar