Brunnbáturinn Valur

3057. Valur ex Faeroy. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Hér gefur að líat nýjan brunnbát Háafells ehf. sem ber nafnið Valur og er með heimahöfn á Ísafirði. Valur, sem áður bar nafnið Fareoy, var keyptur frá Chile en þar var hann í eigu útgerðarfyrirtækisins Friosur. Valur var smíðaður árið 1998 og er 499 GT að stærð. … Halda áfram að lesa Brunnbáturinn Valur

MSC Preziosa

IMO 9595321. MSC Preziosa. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Farþegaskipið MSC Preziosa siglir hér inn til hafnar í Reykjavík sl. föstudagsmorgun. Skipið var smíðað í Frakklandi árið 2013 og siglir undir fána Panama með heimahöfn í Panamaborg. MSC Proziosa er 335,35 metrar að lengd, breidd skipsins er 39,7 metrar og það mælist 139,072 GT að stærð. … Halda áfram að lesa MSC Preziosa

Rotterdam kom í morgun

IMO 9837470. Rotterdam á Skjálfanda. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Farþegaskipið Rotterdam sigldi inn Skjálfandann í morgun og lagðist við akkeri framundan Húsavík. Rotterdam er stærsta skipið sem komið hefur hingað það sem af er sumri en það er 299,79 metrar að lengd, breidd þess er 35 metrar og það mælist 99,935 GT að stærð. Skipið … Halda áfram að lesa Rotterdam kom í morgun

Malik Arctica kom til Húsavíkur í morgun

IMO 9618135. Malik Arctica á Skjálfanda. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Flutningaskipið Malik Actica kom til Húsavíkur í morgun og lagðist að Bökugarði Skipið er í eigu Royal Arctic Line A/S á Grænlandi og var smíðað árið 2017. Það siglir undir dönskum fána með heimahöfn í Álaborg. Malik Arctica er 114,4 metrar að lengd, breidd skipsins … Halda áfram að lesa Malik Arctica kom til Húsavíkur í morgun

Aðalbjörg RE 5 á dragnótaveiðum

1755. Aðalbjörg RE 5. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Jón Steinar myndaði Aðlbjörgu RE 5 þar sem hún var við dragnótaveiðar í gær. Vestur á Víkum eins og ljósmyndarinn orðaði það. Aðalborg RE 5 var smíðuð á Seyðisfirði árið 1987 en látum myndirnar tala sínu máli. 1755. Aðalbjörg RE 5. Ljósmyndir Jón Steinar Sæmundsson 2025. … Halda áfram að lesa Aðalbjörg RE 5 á dragnótaveiðum

SH Diana kom til Húsavíkur í morgun

IMO 9921740. SH Diana á Skjálfanda. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Skemmtiferðaskipið SH Diana kom til Húsavíkur í morgun og lagðist að Norðurgarði en fyrir var í höfn Hanseatic nature. SH Diana siglir undir fána Panama með heimahöfn í Panamaborg. Skipið var smíðað í Helsinki í Finnlandi árið 2023 og mælist 12,255 GT að stærð. Lengd … Halda áfram að lesa SH Diana kom til Húsavíkur í morgun

Mardís ÞH 151

6425. Mardís ÞH 151. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2003. Mardís ÞH 151 var smíðuð árið 1983 og gerð út af Árna Sigurðssyni til ársins 2003 er Uggi fiskverkun ehf. á Húsavík kaupir hana. Ári síðar er Baldur Sigtryggsson skráður eigandi og báturinn kominn í núllflokk á Fiskistofu og afskráður árið 2007. Skrokkur bátsins var smíðaður hjá … Halda áfram að lesa Mardís ÞH 151