2434. Blíða VE 263 ex Arnþór EA 37. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2025. Blíða VE 263 kemur hér til hafnar í Vestmannaeyjum í vikunni en Georg Eiður Arnarson gerir hana út til strandveiða. Upphafleg hét báturinn Kalli í Höfða ÞH 234 og var smíðaður hjá Trefjum árið 2000 fyrir Aðalstein Pétur Karlsson á Húsavík. Árið 2009 … Halda áfram að lesa Blíða VE 263
Month: maí 2025
Heimaey VE 1 seld til Noregs
2812. Heimaey VE 1. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2025. Ísfélag hf. hefur selt Heimaey VE 1 til norska félagsins Andrea L AS. og í kvöld kll 20:00 lét hún síðasta sinn úr heimahöfn í Eyjum. Áfangastaðurinn er Maloy en þar verður skipið afhent norskum kaupendum í næstu viku. Tryggvi Sigurðsson tók meðfylgjandi mynd í kvöld. Í … Halda áfram að lesa Heimaey VE 1 seld til Noregs
Júlíus Garðar ÁR 111
1929. Júlíus Garðar ÁR 111 ex Brík BA 2. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2002. Júlíus Garðar ÁR 111 hét upphaflega Kópur HF 202 og var smíðaður í Noregi árið 1990. Sama ár var báturinn seldur til Ólafsvíkur þar sem hann fékk nafnið Jói á Nesi SH 159. Hann var lengdur árið 1991 og er tæpar 12 … Halda áfram að lesa Júlíus Garðar ÁR 111
Gullfaxi NK 6
1900. Gullfaxi NK 6. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Dragnótabáturinn Gullfaxi NK 6 er hér við veiðar um árið og það við Langanes held ég. Báturinn var smíðaður fyrir Guðmund Þorleifsson í Neskaupstað í Noregi árið 1988. Gullfaxi varð ÓF 11 árið 1996 og var það til ársins 2001. Þá fékk Gullfaxi einkennisstafina GK 417 í stuttan … Halda áfram að lesa Gullfaxi NK 6
Katrín ÞH 10
7443. Katrín ÞH 10 ex Ósk HF 860. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2003. Katrín ÞH 10 var smíðuð hjá Bátasmiðju Guðumundar í Hafnarfirði árið 1996 og hét upphaflega Ósk HF 860. Katrín var með heimahöfn á Húsavík árin 2002-2005 en hefur heitið Geisli SK 66 uppfrá því. Heimahöfn Hofsós. Með því að smella á myndina er … Halda áfram að lesa Katrín ÞH 10
Gullberg VE 292
2747. Gullberg VE 292 ex Riba 1. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Gullberg VE 292 lætur hér úr höfn i Vestmannaeyjum um árið en Ufsaberg hf. keypti skipið þangað árið 2006. Gullbergið hafði Ufsaberg ehf. keypt í Ástralíu en til Vestmannaeyja kom skipið vorið 2007 frá Danmörku þar sem unnið var að gagngerum endurbótum og breytingum á … Halda áfram að lesa Gullberg VE 292
Sólrún EA 351
162. Sólrún EA 351 ex Arnar ÁR 55. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sólrún EA 351 hét upphaflega Ólafur Tryggvason SF 60 og var smíðaður í Noregi 1960 fyrir Tryggva Sigjónsson h/f á Hornafirði. 1976 er báturinn seldur til Hafnarfjarðar þar sem hann fær nafnið Hringur GK 18. Kaupendur Aðalsteinn og Helgi Einarssynir ásamt Ingimundi Jónssyni. Hringur var lengdur 1978. Selt í … Halda áfram að lesa Sólrún EA 351
Otur III ÍS 33
2766. Otur III ÍS 33 ex Steinunn BA 517. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Hér liggja Otrar tveir í Hafnarfjarðarhöfn en það er sá sem utar liggur sem er hér til umfjöllunar.. Otur III ÍS 33 hét upphaflega hét Benni SF 66 og var smíðaður í Trefjum árið 2007. Síðar fékk hann nafnið Steinunn HF 108 en … Halda áfram að lesa Otur III ÍS 33
Breb Countess
IMO 9421166. Breb Countess ex Ubc Montego Bay. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Flutningaskipið Breb Countess hefur undanfarna daga legið undan landi við Keflavík og beðið vekefna. Skipið var smíðað árið 2009 hjá Huataiskipasmíðastöðinni í Nanjing í Kína og hét upphaflega Miamidiep. Síðar fékk það nafnið Ubc Montego bay en hefur borið núverandi nafn síðan … Halda áfram að lesa Breb Countess
Víkurberg GK 1
979. Víkurberg GK 1 ex Stapavík SI 4. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Loðnuskipið Víkurberg Gk 1 kemur hér að bryggju í Njarðvík um árið en það voru Benóný Þórhalsson og Reynir Jóhannsson sem gerðu skipið út. Þeir keyptu skipið frá Siglufirði árið 1980 en þar bar það nafnið Stapavík SI 4 og hafði verið í eigu … Halda áfram að lesa Víkurberg GK 1









