Tjúlla GK 29 á landleið

2595. Tjúlla GK 29 ex Grunnvíkingur HF 163. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Tjúlla GK 29 er hér á leið til hafnar í Sandgerði eftir róður í fyrradag. Upphaflega hét báturinn Grunnvíkingur HF 163 og var smíðaður hjá Sólplasti í Sandgerði árið 2003. Heimahöfn Hafnarfjörður. Hann hefur heiti Tjúlla GK 29 frá árinu 2015, fyrst … Halda áfram að lesa Tjúlla GK 29 á landleið

Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins kom til Húsavíkur í morgun

IMO 9813084. Fridtjof Nansen. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins kom til Húsavíkur í morgun og þar var á ferðinni Fridtjof Nansen. Fridtjof Nansen er svokallað leiðangursskip sem HX Expeditions (áður Hurtigruten) gerir út og ber nafn norska land­könnuðar og vís­inda­mannsins, Fridtjof Nan­sen. Skipið er tví­orku (hybrid) skip og var afhent frá Kleven Verft AS … Halda áfram að lesa Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins kom til Húsavíkur í morgun

Ólafur GK 133

7336. Ólafur GK 133 ex Hafdís ÍS 35. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Hér er Ólafur GK 133, nýjasti strandveiðibátur Grindvíkinga, á skaki úti fyrir Hópsnesi við Grindavík í gær en Eiríkur Dagbjartsson gerir hann út í gegnum fyrirtæki sitt Grindjáni ehf. Ólafur GK 133 hét upphaflega Aðalbjörg Þorsteinsdóttir HF 33 og var smíðaður hjá … Halda áfram að lesa Ólafur GK 133

Við Húsavíkurhöfn

Við Húsavíkurhöfn 11. maí 2025. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér gefur að líta mynd sem tekin var við Húsavíkurhöfn í veðurblíðu gærdagsins. Á myndinni má m.a sjá strandveiðibáta við bryggju ásamt frístundabátum. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can view them in … Halda áfram að lesa Við Húsavíkurhöfn

Hrafnreyður KÓ 100

1324. Hrafnreyður KÓ 100 ex Valur ÍS 18. Ljósmynd Jón Páll Ásgeirsson 2013. Hrefnubátnum Hrafnreyður KÓ 100 er hér á mynd sem Jón Páll Ásgeirsson tók á miðunum sumarið 2013. Báturinn var smíðaður hjá Vélsmiðju Seyðisfjarðar hf. árið 1973 og er 101 brl. að stærð. Hann hét upphaflega Ottó Wathne NS 90 og var í … Halda áfram að lesa Hrafnreyður KÓ 100

Jökull útbúinn á grálúðunet

2991. Jökull ÞH 299 ex ex Nanoq GR 1-1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. 11. maí er lokadagur vetrarvertíðar samkvæmt gömlu tímatali og af því tilefni birtist hér mynd sem tekin var við Húsavíkurhöfn í morgun. Þar var verið að útbúa Jökul ÞH 299 til grálúðuveiða í net en hann kom á dögunum norður eftir vetrarvertíð. Byrjaði í Breiðafirði en … Halda áfram að lesa Jökull útbúinn á grálúðunet

Svanur EA 14

7498. Svanur EA 14 ex Sigurveig EA 527. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2012. Svanur EA 14 sem hér um ræðir var smíðaður hjá Bátasmiðju Guðmundar í Hafnarfirði árið 2001. Upphaflega hét hann Vík SH 13 og var smíðaður fyrir  Útgerðarfélagið Kríli ehf. Grundarfirði. Ári síðar var báturinn seldur norður í land og fékk nafnið Sigurveig EA 527 … Halda áfram að lesa Svanur EA 14

Moby Dick

46. Moby Dick ex Fjörunes. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hvalaskoðunarbáturinn Moby Dick heldur hér í ferð út á Skjálfandaflóa en það var Arnar Sigurðsson sem gerðu bátinn út á sínum tíma. Upphaflega Djúpbáturinn Fargranes sem smíðaður var í Florø í Noregi árið 1963 og mældist þá 134 brl. að stærð. Moby Dick kom til Húsavíkur sumarið … Halda áfram að lesa Moby Dick