Maverick III E 200. Ljósmynd Trefjar 2025. Trefjar afhentu á dögunum nýjan Cleopatra 33 bát, Maverick III, til Lyme Regis í Dorset á suðurströnd Englands. Eigandi og skipstjóri bátsins er Brett Newton frá Beer og að hans sögn verður báturinn gerður út frá Lyme Regis allt árið um kring. Aðalvél bátsins er FPT C90 tengd … Halda áfram að lesa Ný Cleopatra 33 afhent til Englands
Month: apríl 2025
Vatneyri BA 238
78. Vatneyri BA 238 ex Erlingur GK 212. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Vatneyri BA 238 liggur hér við bryggju í Reykjavík um árið en upphaflega er þetta tappatogarinn Hafþór NK 76. Hér má lesa nánar um skipið sem frá árinu 2000 bar nafnið Ísborg ÍS 250. Ísborg fór í brotajárn árið 2019. Með því að smella … Halda áfram að lesa Vatneyri BA 238
Moby Dick byrjaður að sigla
1453. Moby Dick ex Gerpir NK 111. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Hvalaskoðunarbáturinn Moby Dick kemur hér að landi á Húsavík í gær en vertíðin byrjaði hjá Adda skólabróður og fjölskyldu í gær. Gentle Giants hóf einnig sína vertíð í gær en því miður rétt missti ég af Sylvíu þegar hún kom til hafnar eftir fyrstu … Halda áfram að lesa Moby Dick byrjaður að sigla
Guðbjörg Ósk SH 251
1354. Guðbjörg Ósk SH 251 ex Guðbjörg Ósk VE 151. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2001 Guðbjörg Ósk SH 251 lætur hér úr höfn í Sandgerði um sumarið 2001 en báturinn var með heimahöfn í Ólafsvík. Báturinn, sem er í dag skonnortan Hildur frá Húsavík, hét upphaflega Múli ÓF 5 og var smíðaður á Akureyri árið 1974.Lesa … Halda áfram að lesa Guðbjörg Ósk SH 251
Vestmannaey á útleið frá Grindavík
2954. Vestmannaey VE 54. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Jón Steinar tók þessar myndir sl. sunnudag þegar Vestmannaey VE 54 hélt til veiða að lokinni löndun í Grindavík. Vestmannaey er í eigu Bergs- Hugins hf dótturfélags Síldarvinnslunnar og var smíðuð í skipasmíðastöð Vard í Aukra í Noregi. 2954. Vestmannaey VE 54. Ljósmyndir Jón Steinar Sæmundsson 2025. … Halda áfram að lesa Vestmannaey á útleið frá Grindavík




