1910. Glaður SU 97 ex Gestur SU 160. Ljósmynd Vigfús Markússon. Glaður SU 97 hét upphaflega Gestur SU 160 og var smíðaður árið 1988 hjá Baldri Halldórssyni skipasmið á Híðarenda við Akureyri. Báturinn var gerður út frá Djúpavogi til ársins 2020 en þá var hann seldur til Þorlákshafnar þar sem hann fékk nafnið Stórborg ÁR 1. … Halda áfram að lesa Glaður SU 97
Month: apríl 2025
Ásgeir SH 150
950. Ásgeir SH 150 ex Gísli Gunnarsson II SH 85. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Ásgeir SH 150 hét upphaflega Farsæll II EA 130 og var smíðaður fyrir Hríseyinga í Skipasmíðastöð KEA árið 1964. Báturinn, sem er 18 brl. að stærð, var seldur til Húsavíkur síðar það ár og kom þangað í byrjun desember. Kaupandi var Útgerðarfélagið Vísir h/f … Halda áfram að lesa Ásgeir SH 150
Tjaldur BA 68
5668. Tjaldur BA 68 ex Guðný HF 68. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Tjaldur BA 68 hét upphaflega Sigursæll RE 219 og var smíðaður í Bátalóni í Hafnarfirði árið 1955. Árið 1967 var Sigursæll, sem er 5,38 brl. að stærð, kominn vestur í Reykhólasveit og varð BA 219. Árin 1969 til 1977 var Sigursæll ÁR 47 … Halda áfram að lesa Tjaldur BA 68
Erlingur SF 65
1379. Erlingur SF 65 ex Haförn EA 955. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Erlingur SF 65 var smíðaður hjá Slippstöðinni á Akureyri 1974 og hafði fengið nafnið Kópanes BA 99 þegar hann var sjósettur. Báturinn var upphaflega smíðaður fyrir Einhamar hf. á Bíldudal en áður en til afhendingar kom seldi fyrirtækið bátinn til Mumma hf. í Sandgerði … Halda áfram að lesa Erlingur SF 65
Poseidon EA 303
1412. Poseidon EA 303 ex Harðbakur EA 303. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2011. Hér liggur rannsóknarskipið Poseidon EA 303 við bryggju á Akureyri í aprílmánuði árið 2011. Harðbakur EA 303 var smíðaður í San Juan skammt frá San Sebastian á Norður-Spáni fyrir Útgerðarfélag Akureyringa h/f. Harðbakur, sem var síðastur Spánartogaranna sex af stærri gerðinni, kom til … Halda áfram að lesa Poseidon EA 303
Særún byrjuð á grásleppu
2793. Særún EA 251 ex Nanna Ósk II SU 90. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Særún EA 251 kemur hér að landi á Húsavík en báturinn hefur nýhafið grásleppuveiðar. Það er GPG Seafood ehf. sem gerir bátinn út en upphaflega hét hann Nanna Ósk II ÞH 133 frá Raufarhöfn. 2793. Særún EA 251 ex Nanna Ósk … Halda áfram að lesa Særún byrjuð á grásleppu
Skipaskagi AK 102
1612. Skipaskagi AK 102 ex Glen Carron. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Skipaskagi AK 102 var keyptur árið 1982 frá Englandi þar sem hann bar nafnið Glen Carron. Það var Heimaskagi hf. á Akranesi sem keypti togarann til landsins en hann var smíðaður hjá Clelands Shipbuilding Co Ltd í Wallsend í Englandi árið 1974. Skipaskagi, sem var … Halda áfram að lesa Skipaskagi AK 102
Sigrún Björk ÞH 100
7882. Sigrún Björk ÞH 100. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Handfærabáturinn Sigrún Björk ÞH 100 kemur hér að landi á Húsavík í gær en það er Dodda ehf. sem gerir hann út. Sigrún Björk er Sómi 990 sem Víkingbátar smíðuðu fyrir Doddu ehf. og afhentu fyrir rúmu ári síðan. 7882. Sigrún Björk ÞH 100. Ljósmyndir Hafþór … Halda áfram að lesa Sigrún Björk ÞH 100
Sólrún EA 151
2706. Sólrún EA 151 ex Tumi EA 84. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Línubáturinn Sólrún EA 151 kemur hér til hafnar á Húsavík í gær en Það er GPG Seafood sem gerir bátinn út. Upphaflega hét báturinn, sem er 25 BT að stærð, Sæunn Sæmunds ÁR 60 frá Þorlákshöfn. Sólrún var smíðuð hjá Seiglu á Akureyri árið 2007 og hefur … Halda áfram að lesa Sólrún EA 151
Geir ÞH 150
2408. Geir ÞH 150. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Dragnótabáturinn Geir ÞH 150 frá Þórshöfn kemur hér til löndunar á Húsavík í gær. Báturinn, sem er 196 BT að stærð, var smíðaður fyrir Geir ehf. á Þórshöfn í Ósey í Hafnarfirði árið 2000. 2408. Geir ÞH 150. Ljósmyndir Hafþór Hreiðarsson 2025. Með því að smella á … Halda áfram að lesa Geir ÞH 150









