Margrét GK 33

2952. Margrét GK 33. Ljósmynd Jón Steinar 2025.

Jón Steinar tók þessar myndir í gærmorgun af línubátnum Margréti GK 33 koma að landi í Sandgerði.

Aflinn hjá henni var sagður rúm 10 tonn, skiptist til helminga þorskur og ýsa.

Það er Nesfiskur ehf. sem gerir bátinn út en hann var smíðaður hjá Víkingbátum árið 2019.

Margrét GK 33 er tæplega 22 BT að stærð en lengd hennar er 11,99 metrar.

Heimahöfn Suðurnesjabær.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd