3047. 3047. Hildur SH 777 ex Pia Glanz L. 654. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Hildur SH 777 er hér við slippkantinn á Akureyri í dag en Slippurinn Akureyri vinnur nú af krafti að smíði nýs vinnsludekks í bátinn. Báturinn sem Hraðfrystihús Hellisands keypti frá Danmörku í fyrra hét Pia Glanz, var smíðaður í Vestværftet i Hvidesand í Danmörku árið … Halda áfram að lesa Hildur SH 777 við slippkantinn á Akureyri
Month: mars 2025
Friðrik Sigurðsson ÁR að draga netin
1084. Friðrik Sigurðsson ÁR 17 ex Jóhann Friðrik ÁR 17. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Jón Steinar tók þessar myndir í dag en þær sýna Friðrik Sigurðsson ÁR 17 þar sem hann var að draga netin úti fyrir Straumsvík. Það var ekki að sjá annað á myndunum en það væri mjög gott fiskirí og fiskurinn … Halda áfram að lesa Friðrik Sigurðsson ÁR að draga netin
Erling KE 140
120. Erling KE 140 ex Höfrungur II GK 27. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Erling KE 140 lætur hér úr höfn á Húsavík um árið en upphaflega hét báturinn Sangolt. Báturinn, sem var smíðaður í Avalsnes í Noregi 1957, var keyptur til árið 1960 og fékk nafnið Höfrungur II AK 150. Síðar Höfrungur II GK 27, Erling … Halda áfram að lesa Erling KE 140
Hálf öld síðan Kristbjörgin var afhent frá Skipavík
1420. Kristbjörg ÞH 44. Ljósmynd úr safni Hreiðars Olgeirssonar. Um þessar mundir eru fimmtíu ár síðan Skipavík hf. í Stykkishólmi afhenti Korra hf. á Húsavík nýsmíði sem gefið var nafnið Kristbjörg ÞH 44. Ekki hef ég séð né fundið myndir frá komu hennar til heimahafnar á Húsavík en mig minnir að það hafi verið í … Halda áfram að lesa Hálf öld síðan Kristbjörgin var afhent frá Skipavík
Daðey GK 777
2617. Daðey GK 777. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Línubáturinn Daðey GK 77 frá Grindavík kemur hér að landi á Djúpavogi í júlímánuði árið 2004. Báturinn var smíðaður hjá Bátasmiðjunni Mótun í Njarðvík sama ár og er af gerðinni Gáski 1180. Í upphafi árs 2018 fékk báturinn nafnið Bergvík KE 22 en frá árinu 2022 hefur … Halda áfram að lesa Daðey GK 777
Varðskipið Þór
2769. Þór. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Varðskipið Þór lónaði í stutta stund utan við Grindavík í gær og flaug Jón Steinar drónanum út yfir hann. Eftir stutta stund setti hann á fulla ferð vestur fyrir Reykjanes en Jón Steinar náði þessum myndum áður. 2769. Þór. Ljósmyndir Jón Steinar Sæmundsson 2025. Með því að smella … Halda áfram að lesa Varðskipið Þór
Pathway PD 165 kom til Vestmannaeyja með kolmuna
IMO 9763095. Pathway PD 165. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2025. Skoska uppsjávarveiðiskipið Pathway PD 165 frá Peterhead kom til löndunar í Vestmannaeyjum í morgun en skipið var með um 2000 tonn af kolmuna. Eins og komið hefur fram á síðunni hefur Ísfélagið hf. fest kaup á skipinu sem verður afhent núna í maí. Seljandi er Lunar … Halda áfram að lesa Pathway PD 165 kom til Vestmannaeyja með kolmuna
Dintelborg kom til Húsavíkur í dag
IMO 9163685. Dintelborg. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Hollenska flutningaskipið Dintelborg kom til Húsavíkur í dag með hráefnisfarm fyrir PCC á Bakka. Skipið var smíða hjá Van Diepen Shipyard í Waterhuizen í Hollandi árið 1999 og er 6,235 GT að stærð. Skipið er 133 metra langt og breidd þess er 14 metrar. Skipið hét upphaflega Dintelborg en árin … Halda áfram að lesa Dintelborg kom til Húsavíkur í dag
Ísborg ÍS 250
78. Ísborg ÍS 250 ex Vatneyri BA 238. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2010. Ísborg ÍS 250 kemur hér til hafnar á Húsavík í ágústmánuði árið 2010 en hún landaði oft hér úthafsrækju. Ísborg hét upphaflega Hafþór NK 76 og var einn af tólf austur þýskum, svokölluðum tappatogurum, sem voru smíðuð í Stralsund fyrir Íslendinga. Hafþór var … Halda áfram að lesa Ísborg ÍS 250
Oddur á Nesi SI 76
2799. Oddur á Nesi SI 76. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2014. Oddur á Nesi SI 76 var smíðaður á Siglufirði 2010 fyrir Útgerðarfélagið Nesið ehf. þar í bæ. Í maímánuði 2015 var hann orðinn ÓF 176, í eigu sömu útgerðar, og í apríl 2016 fær báturinn nafnið Örninn ÓF 176. Marver ehf. í Grindavík keypti bátinn … Halda áfram að lesa Oddur á Nesi SI 76









