
Fúsi SH 162 kemur hér að landi í Grindavík vorið 2004 en síðar sama ár fékk báturinn nafnið Grímsnes GK 555.
Upphaflega hét báturinn Neptúnus NS 8 og var smíðaður árið 1978 í Vélsmiðju Seyðisfjarðar.
Neptúnus var gerður út frá Seyðisfirði til ársins 1991 er hann var seldur vestur á Snæfellsnes. Þar fékk hann nafnið Fúsi SH 162 með heimahöfn á Rifi.
Árið 2004 fær hann nafnið Grímsnes GK 555 en báturinn stoppað stutt á Suðurnesjunum og var kominn aftur á Snæfellsnesið ári síðar.
Þar fékk hann nafnið Sproti SH 51 með heimahöfn í Grundarfirði.
Það var svo árið 2010 sem hann fær nafnið Dýrfiskur ÍS 96 með heimahöfn á Þingeyri en hann er þjónustubátur við fiskeldi þar vestra.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution
Sæll Hafþór.Var. Neptúnus ekki byggður 1988 èg réri nokkra róðra á honum á lìnu.
Líkar viðLíkar við
Sæll Orri, samkvæmt skipaskrá er hann smíðaður árið 1987.
Líkar viðLíkar við