Pathway PD 165 kom til Vestmannaeyja með kolmuna

IMO 9763095. Pathway PD 165. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2025. Skoska uppsjávarveiðiskipið Pathway PD 165 frá Peterhead kom til löndunar í Vestmannaeyjum í morgun en skipið var með um 2000 tonn af kolmuna. Eins og komið hefur fram á síðunni hefur Ísfélagið hf. fest kaup á skipinu sem verður afhent núna í maí. Seljandi er Lunar … Halda áfram að lesa Pathway PD 165 kom til Vestmannaeyja með kolmuna

Dintelborg kom til Húsavíkur í dag

 IMO 9163685. Dintelborg. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Hollenska flutningaskipið Dintelborg kom til Húsavíkur í dag með hráefnisfarm fyrir PCC á Bakka. Skipið var smíða hjá Van Diepen Shipyard í Waterhuizen í Hollandi árið 1999 og er 6,235 GT að stærð. Skipið er 133 metra langt og breidd þess er 14 metrar. Skipið hét upphaflega Dintelborg en árin … Halda áfram að lesa Dintelborg kom til Húsavíkur í dag

Ísborg ÍS 250

78. Ísborg ÍS 250 ex Vatneyri BA 238. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2010. Ísborg ÍS 250 kemur hér til hafnar á Húsavík í ágústmánuði árið 2010 en hún landaði oft hér úthafsrækju. Ísborg hét upphaflega Hafþór NK 76 og var einn af tólf austur þýskum, svokölluðum tappatogurum, sem voru smíðuð í Stralsund fyrir Íslendinga. Hafþór var … Halda áfram að lesa Ísborg ÍS 250