
Votaberg SU 10 frá Eskifirði kemur hér til hafnar á Húsavík eftir úthafsrækjuveiðitúr en skipið var gert út af Eskju á Eskifirði.
Upphaflega hét skipið Óskar Halldórsson RE 157 og var smíðaður árið ð1964 í Zandaam í Hollandi fyrir Ólaf Óskarsson útgerðarmann í Reykjavík.
Óskar Halldórsson RE 157 fékk síðar nöfnin Gestur SU 160, Votaberg SU 10, Aldey ÞH 380, Óskar ÞH 380 og að lokum Óskar RE 157.
Óskar fór í pottinn 2010, nánar tiltekið til Ghent í Belgíu.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.