Bjarka og Þráni fargað ásamt fleiri bátum

5357. Þráinn ÞH 2 - 5525. Bjarki ÞH 271. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Í Morgunblaðinu í dag segir frá afdrifum sex gamallra trébáta sem staðið hafa við Safnahúsið á Húsavík í mörg ár en hurfu af sjónarsviðinu á dögunum. Fram kemur m.a í fréttinni að bát­arn­ir hafi verið all­ir metn­ir ónýt­ir og Menn­ing­armiðstöð Þing­ey­inga hafi … Halda áfram að lesa Bjarka og Þráni fargað ásamt fleiri bátum

Lokadagur vetrarvertíðar 11. maí

1420. Kristbjörg ÞH 44. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. 11. maí er lokadagur vetrarvertíðar samkvæmt gömlu tímatali og af því tilefni birtist hér mynd af áhöfninni á Kristbjörginni ÞH 44 draga netin. Myndina tók Hreiðar Olgeirsson þá skipstjóri á Kristbjörgu II ÞH 244, sennilega vorið 1979, en hann tók árið síðar við Kristbjörginni og var með hana til ársins … Halda áfram að lesa Lokadagur vetrarvertíðar 11. maí

Tindur seldur til Marokkó

2017. Tindur ÍS 325 ex Helgi SH 135. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2024. Tindur ÍS 325 hefur verið seldur til Marokkó og kom við í Vestmannaeyjum í vikunni á leið sinni suður til Agadir. Tindur hét upphaflega Þór Pétursson ÞH 50 og var í eigu Njarðar hf. í Sandgerði, smíðaður á Ísafirði 1989. Guðmundur Runólfsson hf. á Grundarfirði … Halda áfram að lesa Tindur seldur til Marokkó

Airisto kom til Húsavíkur í kvöld

IMO 9213727. Airisto siglir inn Skjálfanda í kvöldsólinni. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Finnska flutningaskipið Airisto kom til Húsavíkur í kvöld og lagðist að Bökugarðinum þar sem hráefnisfarmi fyrir kísilver PCC á Bakka verður skipað upp. Skipið var smíðað í Hollandi árið 2000 og hefur áður borið nöfnin Malte Rambow 2000-2003, Annalisa frá 2008-2013 og Ara … Halda áfram að lesa Airisto kom til Húsavíkur í kvöld

Guðbjörg við bryggju í Njarðvík

3020. Guðbjörg GK 9 ex Margrét GK 9. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Guðbjörg GK 9 við bryggju í Njarðvík á dögunum en báturinn, sem smíðaður var í Tyrklandi, kom til landsins sl. haust sem Margrét GK 9. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you … Halda áfram að lesa Guðbjörg við bryggju í Njarðvík

Þórður ÞH 92

5476. Þórður ÞH 92. Ljósmynd Pétur Jónasson. Þórður ÞH 92 var smíðaður fyrir Viðar Þórðarson árið 1961 af Jóhanni Sigvaldasyni bátasmið á Húsavík. Myndin kemur úr safni Péturs Jónassonar ljósmyndara á Húsavík. Báturinn var 3,51 brl. að stærð, smíðaður úr furu og eik. Búinn 33 hestafla Volvo Pentavél. Hér má lesa sögu Þórðar en í … Halda áfram að lesa Þórður ÞH 92