582. Hringur SH 277 ex Hólmaröst SH 180. Ljósmynd Alfons Finnsson. Hringur SH 277 kemur hér að landi í Ólafsvík um árið en þaðan var báturinn gerður út út um árabil. Hringur var smíðaður í Hollandi árið 1955 og hét upphaflega Hringur SI 34. Hann var 61 brl. að stærð en báturinn var síðar lengdur … Halda áfram að lesa Hringur SH 277
Year: 2024
Helga Jóh
1595. Helga Jóh VE 41 ex Von. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Helga Jóh VE 41 kemur hér til hafnar í Vestmannaeyjum um árið en þangað var báturinn keyptur frá Færeyjum árið 1981. Báturinn var smíðaður í Campeltown í Skotlandi árið 1977 fyrir Færeyinga og hét Von og mældist 149 brl. að stærð. Báturinn heitir í dag … Halda áfram að lesa Helga Jóh
Scenic Eclipse
IMO 9797371. Scenic Eclipse. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Skemmtiferðaskipið Scenic Eclipse lét úr höfn á Húavík nú undir kveld en skipið kom til hafnar rétt fyrir hádegi í gær. Skipið var smíðað hjá Uljanik shipyard í Pula í Króatíu árið 2019. Útgerðin er í Rijeka í Króatíu en skipið siglir undir fána Bahamaseyja með heimahöfn … Halda áfram að lesa Scenic Eclipse
Þórsnes SH 109
2936. Þórsnes SH 109 ex Veidar 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Loksins rataði Þórsnes SH 109 fyrir linsuna hjá mér, þ.e.a.s á siglingu, en báturinn rak nefið inn í Húsavíkurhöfn í kvöld. Þórsnesið var keypt frá Noregi og kom til heimhafnar í Stykkishólmi sumarið 2017. Í Noregi bar skipiðð nafnið Veidar 1 M-76-G og var með … Halda áfram að lesa Þórsnes SH 109
National Geographic Resolution
IMO: 9880685. National Geographic Resolution. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Skemmtiferðaskipið National Geographic Resolution kom til Húsavíkur nú síðdegis og lagðist að Norðurgarði. Skipið var smíðað í Ulstein Verft í Ulsteinvik, Noregi árið 2021. NG Resolution er 124,43 metra langt og 21 metra breitt. Það mælist 12,726 GT að stærð, tekur 126 farþega í 69 káetum. Áhöfn þess telur … Halda áfram að lesa National Geographic Resolution
Bára ÍS 364
1053. Bára ÍS 364 ex Bára SH 27. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Bára ÍS 364, sem hér liggur við bryggju í Þorlákshöfn um árið, hét upphaflega Kristjón Jónsson SH 77 frá Ólafsvík. Síðar Kristbjörg ÞH 44 og Kristbjörg II ÞH 244. 1980 fékk báturinn nafnið Skálaberg ÞH 244 og þegar það var selt til Flateyrar fékk … Halda áfram að lesa Bára ÍS 364
Norwegian Star á Skjálfanda
IMO 9195157. Norwegian Star á Skjálfanda í morgun. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Skemmtiferðaskipið Norwegian Star kom inn á Skjálfandaflóa í morgun og lagðist við festar framundan Húsavíkurhöfn um stund. Norwegian Star er með stærstu skipum sem koma til Húsavíkur í sumar, mælist 91,740 GT að stærð. Lengd þess er 294,15 metrar og breiddin er 32,8 … Halda áfram að lesa Norwegian Star á Skjálfanda
Freri RE 73
1345. Freri RE 73 ex Ingólfur Arnarson RE 201. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Freri RE 73 kemur hér til hafnar í Reykjavík í aðdraganda Sjómanndagsins um árið en það var Ögurvík hf. sem gerði hann út. Freri hét upphaflega Ingólfur Arnarson RE 201, og var einn stóru Spánartogaranna svokölluðu og sá eini sem er enn í … Halda áfram að lesa Freri RE 73
Jói ÍS
7417. Jói ÍS 118 ex Jói ÍS 10. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Jói ÍS 118 kom við á Húsavík í ágústmánuði árið 2021 og þá var þessi mynd tekin. Báturinn hét upphaflega Þrándur KE 67 og var smíðaður hjá Bátasmiðju Guðmundar árið 1995. Árið 2000 fékk báturinn nafnið Jói ÍS 10 með heimahöfn á Ísafirði. … Halda áfram að lesa Jói ÍS
Silver Endeavour á Skjálfanda
IMO 9821873. Silver Endeavour ex Crystal Endeavor.. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Skemmtiferðaskipið Silver Endeavour kom í morgun inn á Skjálfanda og lagðist við stjóra fram undan Húsavíkurhöfðanum. Silver Endeavor er 168 metra langt og 28 metra breitt og smíðaár er 2021. Það mælist 20.449 GT að stærð. Skipið hét fyrsta árið Crystal Endeavour og kom … Halda áfram að lesa Silver Endeavour á Skjálfanda









