1115. Eldhamar GK 13 ex Nausti NK 97. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Eldhamar GK 13 liggur hér við bryggju í Grindavík um árið en þetta nafn bar báturinn í nokkur ár á tíunda áratug síðustu aldar. Upphaflega Kópur SU 154 154 frá Reyðarfirði og var smíðaður árið 1970 hjá Skipasmíðastöð Marsellíusar Bernharðssonar hf. á Ísafirði. Lesa … Halda áfram að lesa Eldhamar GK 13
Month: nóvember 2024
Rauðsey AK 14
1030. Rauðsey AK 14 ex Örfirisey RE 14. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Rauðsey AK 14 frá Akranesi kemur hér til hafnar í Reykjavík um árið, sennilega haustið 1985. Rauðsey hét upphaflega Örfirisey RE 14 og var smíðuð í Deest í Hollandi árið 1966. Báturinn var 308 brl. að stærð. Í lok árs 1972 var Örfirisey seld … Halda áfram að lesa Rauðsey AK 14
Hákon ÞH 250 í Krossanesi
1059. Hákon ÞH 250 ex heimir SU 100. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hákon ÞH 250 er hér að landa loðnu í Krossanesi um árið en hann hét upphaflega Heimir SU 100 frá Stöðvarfirði. Heimir var smíðaður fyrir Varðarútgerðina hf. í Noregi árið 1967 og mældist 363 brl. að stærð. Gjögur hf. á Grenivík keypti skipið árið … Halda áfram að lesa Hákon ÞH 250 í Krossanesi
Eyborg EA 59
217. Eyborg EA 59 ex Sæunn Sæmundsdóttir ÁR 60. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Eyborg EA 59 frá Hrísey er hér á rækjumiðunum fyrir Norðurlandi um árið en þarna var hún að taka japanskan eftirlitsmann með í land sem hafði verið um borð í Geira Péturs ÞH 344. Eyborg hét upphaflega Vattarnes SU 220 og var gerð … Halda áfram að lesa Eyborg EA 59
Nausti NK 97
1115. Nausti NK 97 ex Sigrún ÍS 113. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Nausti NK 97 var gerður út frá Neskaupstað á árunum 1990 - 1992 en upphaflega hét hann Kópur SU 154 frá Reyðarfirði. Báturinn var smíðaður árið 1970 hjá Skipasmíðastöð Marsellíusar Bernharðssonar hf. á Ísafirði og var 38 brl. að stærð. Kópur var seldur til … Halda áfram að lesa Nausti NK 97
Andrea
2787. Andrea ex Magdelone. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Hvalaskoðunarbáturinn Andrea kmeur hér til hafnar í Reykjavík á dögunum en það er Special Tours sem gera hana út. Andrea var smíðuð hjá Lindstöls Skips & bätbyggeri A/S í Risør í Noregi árið 1972 og er 299 BT að stærð. Lengd hennar er 34 metrar og breiddin … Halda áfram að lesa Andrea
Hafnarröst ÁR 250
249. Hafnarröst ÁR 250 ex Höfrungur II ÁR 250. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Hafnarröst ÁR 250 hét upphaflega Höfrungur III AK 250 frá Akranesi. Höfrungur III, sem var 267 brl. að stærð, var smíðaður fyrir fyrir Harald Böðvarsson & co á Akranesi árið 1964. Smíðin fór fram hjá skipasmíðastöðinni Kaarbös Mek. Verksted í Harstad í Noregi. … Halda áfram að lesa Hafnarröst ÁR 250
FDA Finn
IMO:9925693. FDA Finn. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Norski báturinn FDA Finn kom til Húsavíkur í morgun en hann þjónustar fiskeldið á Austfjörðum. Báturinn var smíðaður hjá Salthammer Båtbyggeri AS í Noregi árið 2022. FDA Finn er tvýbytna, 24,8 metrar að lengd og breiddin er 13 metrar. Hann mælist 276 GT að stærð. Heimahöfn bátsins er … Halda áfram að lesa FDA Finn
Steffano í slipp
SKS. Steffano EK 16-01 ex Steffen C GR 6-22. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Hér gefur að líta eistneska rækjutogarann Steffano í slippnum í Reykjavík sl. laugardag. Steffano er í eigu Reyktal AS og þeir er skráður í Eistlandi með heimahöfn í Tallinn. Upphaflega Pétur Jónsson RE 69. Með því að smella á myndina er hægt að … Halda áfram að lesa Steffano í slipp
Artic Rose
3034. Artic Rose. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Hvalaskoðunarbátur Sea Trip ehf, Artic Rose, kemur hér til hafnar í Reykjavík sl. laugardag. Báturinn var smíðaður hjá Brodrene Aa Båtbyggeri árið 1981 og er 169 BT að stærð. Lengd hans er 24,4 metrar. Artic Rose er með heimahöfn á Akranesi. Með því að smella á myndina er … Halda áfram að lesa Artic Rose









