Margrét við Oddeyrarbryggju í dag

3038. Margrét EA 710 ex ex Christina S FR 224. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Margrét EA 710, uppsjávarveiðiskip Samherja, hefur legið við Oddeyrarbryggju á Akureyri að undanförnu og var þessi mynd af henni tekin í dag. Samherji keypti skipið frá Skotlandi í marsmánuði 2023 en þar bar það nafnið Christina S. Margrét EA 710 er 2,411 GT … Halda áfram að lesa Margrét við Oddeyrarbryggju í dag

Haugefisk kom á Sail Húsavík 2011

IMO 7705037. Haugefisk SF - B. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2011. Norski báturinn Haugefisk kom til Húsavíkur þegar siglingahátíðin Sail Húsavík var haldin hér sumarið 2011. Á heimasíðu hátíðarinnar sagði að að Hauge­fisk hafi verið smíðaður árið 1978 á skipa­smíðastöðinni H & E Nor­d­tvedt á Fusa í Hörðalandi. Þar sagði jafnframt: Skipið var notað til línu­veiða … Halda áfram að lesa Haugefisk kom á Sail Húsavík 2011

Julie kom í dag

IMO 9277307. Julie ex Gures. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Flutningaskipið Julie kom til Húsavíkur í dag og lagðist að Bökugarði þar sem skipað er upp hráefnisfami fyrir kíslilver PCC á Bakka. Julie, sem kalla má fastagest hér á Húsavík, hafði legið í vari sunnan við Langanes um helgina ásamt Vechtborg sem nú liggur hér framundan … Halda áfram að lesa Julie kom í dag

Misje Rose kom til Húsavíkur í dag

IMO 9967548. Misje Rose. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Flutningaskipið Misje Rose kom til Húsavíkur í dag en skipið er með hráefnisfarm fyrir kísilver PCC á Bakka. Misje Verde er nýtt skip,var smíðað á Sri Lanka árið 2024 og siglir undir norsku flaggi. Heimahöfn skipsins er Bergen. Skipið er um 90 metra langt, breidd þess er … Halda áfram að lesa Misje Rose kom til Húsavíkur í dag

Hákon kom með síld til Hornafjarðar í dag

3059. Hákon ÞH 250 - 2042. Björn lóðs. Ljósmynd Sigurður Davíðsson 2024. Hákon ÞH 250 kom með síld til Hornafjarðar í dag og tók Sigurður Davíðsson þessar myndir við það tækifæri. Þetta er önnur löndun skipsins á Hornafirði og hafði ljósmyndarinn heyrt að aflinn í dag væri um 800 tonn. 3059. Hákon ÞH 250. Ljósmyndir … Halda áfram að lesa Hákon kom með síld til Hornafjarðar í dag