Wilson North siglir inn Hvalfjörð

IMO 9430947. Wilson North. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Flutningaskipið Wilson North siglir hér inn Hvalfjörðinn á dögunum á leið sinni að Grundartanga. Skipið, sem er 123 metrar á lengd, 16 metra breitt og mælist 6,118 GT að stærð. Wilson North var smíðað árið 2010 og siglir undir Maltnesku flaggi með heimahöfn í Walletta. Með því að smella á … Halda áfram að lesa Wilson North siglir inn Hvalfjörð

Sæberg SU 9

252. Sæberg SU 9 e Guðrún Þorkelsdóttir SU 211. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Sæberg SU 9 hét upphaflega Jón Kjartansson SU 111 frá Eskifirði og var smíðaður fyrir samnefnt hlutafélag árið 1963. Smíðin fór fram í Noregi og var báturinn 278 brl. að stærð. Snemma sumars 1971 fékk báturinn nafnið Guðrún Þorkelsdóttir í skamman tíma en … Halda áfram að lesa Sæberg SU 9

Hilmir SU 171

1551. Hilmir SU 171. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Hilmir SU 171 var smíðaður hjá Slippstöðinni á Akureyri og afhentur Hilmi hf. á Fáskrúðsfirði árið 1980. Hilmir var 642 brl. að stærð og lengd hans 56,48 metrar. Hilmir SU 171 var í íslenska flotanum til ársins 1993 en þá um haustið var hann seldur til Chile. Hilmir … Halda áfram að lesa Hilmir SU 171

Ný Cleopatra 33 til Kjøllefjord í Noregi

Tiina E F-32-LB. Ljósmynd Trefjar 2024. Útgerðarfélagið Sagen Fisk AS í Kjøllefjord í Noregi fékk nú á dögunum afhentan nýjan Cleopatra 33 bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Það er Tomas Sagen sem stendur að útgerðinni og verður hann jafnframt skipstjóri á bátnum. Báturinn, sem ber nafnið Tiina E, leysir af hólmi eldri Cleopatra 31 … Halda áfram að lesa Ný Cleopatra 33 til Kjøllefjord í Noregi

Hulda Björnsdóttir GK 11 kom til heimahafnar í gær

3027. Hulda Björnsdóttir GK 11. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2024. Hulda Björnsdóttir GK 11, nýr ísfisktogari Þorbjarnar hf., kom til heimahafnar í Grindavík í gær og tók Jón Steinar þessar myndir. Togarinn var smíðaður hjá skipasmíðastöðinni Astilleros Armon í Gijon á Spáni norðanverðum. Hulda Björnsdóttir GK 11 er 1,864 BT að stærð. lengd hennar er … Halda áfram að lesa Hulda Björnsdóttir GK 11 kom til heimahafnar í gær

Misje Verde á Skjálfanda

IMO 9927433. Misje Verde. Ljósmynd Víðir Már Hermannsson 2024. Flutningaskipið Misje Verde kom til Húsavíkur í morgun og tók Víðir Már Hermannsson þessa mynd úr lóðsbátnum Sleipni. Skipið er með hráefnisfarm fyrir kísilver PCC á Bakka. Misje Verde var smíðað á Sri Lanka árið 2023 og siglir undir norsku flaggi. Heimahöfn skipsins er Bergen. Skipið … Halda áfram að lesa Misje Verde á Skjálfanda