
Hafsúla KE 46 hét upphaflega Hafsúlan SH 7, smíðuð fyrir Halldór S. Sveinsson í Skipasmíðastöðinni Dröfn hf. í Hafnarfirði árið 1976.
Afhent í janúar 1977, 37 brl. að stærð búinn 365 hestafla Caterpillar aðalvél. Heimahöfn Rif á Snæfellsnesi.
Í ágústmánuði 1977 var báturinn skráður RE 77 með heimahöfn í Reykjavík, sami eigandi.
Haustið 1983 fékk báturinn nafnið Már NS 87 og hefur heitið eftirfarandi nöfnum síðan: Dagbjört SU 50 frá Fáskrúðsfirði, Haförn HU 4 frá Hvammstanga, Haförn ÍS 177 frá Þingeyri og síðar Bolungarvík, Hafsúla KE 46 frá Keflavík, Hafsúla ST 11 frá Hólmavík, Hafsúla ÍS 741 frá Ísafirði, Hafsúla BA 741 frá Pareksfirði, Kittí BA 741 frá Bíldudal, Jórunn ÍS 140 frá Bolungarvík og Pétur Afi SH 374 frá Ólafsvík.
Sölkusiglingar ehf. á Húsavík eignuðust bátinn haustið 2016 og var hann gerður var upp í Skipavík í Stykkishólmi um veturinn.
Báturinn fékk nafnið Salka og hóf hvalaskoðunarsiglingar frá Húsavík í sumarbyrjun 2017.
Vorið 2018 var sett í bátinn um 400 hestafla Dossan aðalvél. Í dag mælist báturinn 29,69 brl. að stærð, eða 35 BT.
Vorið 2022 keypti Norðursigling á Húsavík Sölkusiglingar og ári síðar fékk Salka nafnið Dagfari.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.