Azamara Journey í höfn í Malaga

IMO: 9200940. Azamara Journey. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Skemmtiferðaskipið Aazmara Journey kom næstum því til Húsavíkur sumarið 2023 og lesa má um og skoða myndir af hér. En í dag lá skipið í höfn í Malaga á Spáni og þessi mynd tekin þá. Azamara Journey er 30,277 GT að stærð og siglir undir fána Möltu með … Halda áfram að lesa Azamara Journey í höfn í Malaga

Rusadir leggur úr höfn í Malaga

IMO 9832119. Rusadir ex Honfleur. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Hér leggur ferjan Rusadir upp í siglingu frá Malaga síðdegis í dag til Melilla í Marakkó. Rusadir, sem áður hér Honfleur, var smíðuð i Þýskalandi árið 2022 og siglir undir fána Kýpur með heimahöfn í Limassol. Skipið er 187,4 metrar að lengd, breidd þess er 31 … Halda áfram að lesa Rusadir leggur úr höfn í Malaga

Umlungisi í Hafnarfjarðarhöfn.

IMO 8704975. Umlungisi ZRUC ex Örfirisey RE 4. Ljósmynd Magnús Jónsson 2024. Maggi Jóns tók þessa mynd af Umlungisi í Hafnarfjarðarhöfn í dag. Þetta er fyrrum Örfirisey RE 4 sem seld var til Suður Afríku í sumar og hefur fengið nafnið Umlungisi með heimahöfn í Cape Town. Togarinn var smíðaður árið 1988 í Kristiansund í … Halda áfram að lesa Umlungisi í Hafnarfjarðarhöfn.

Aberdeen kom til Húsavíkur með salt

IMO 9313723. Aberdeen ex Wilson Aberdeen. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Flutningaskipið Aberdeen kom til Húsavíkur um kaffileytið með saltfarm en það kom hingað frá Ólafsvík. Skipið var smíðað í Slóvakíu árið 2009 og hefur áður borið nöfnin Wilson Aberdeen og Stortebeker. Aberdeen siglir undir fána Luxemborgar og er 2,451 GT að stærð. Lengd skipsins er … Halda áfram að lesa Aberdeen kom til Húsavíkur með salt

Tjaldur og Rifsnes á Rifi

2158. Tjaldur SH 270 - 2847. Rifsnes SH 44. Ljósmynd Sigurður Friðfinnsson 2024. Sigurður Friðfinnsson tók þessa myndir í gærmorgun af línuskipunum Tjaldi SH 270 og Rifsnesi SH 44 þar sem þau liggja í blankalogni við bryggju á Rifi. Um Tjaldinn má lesa hér en Hraðfrystihús Hellisands keypti Rifsnesið til landsins árið 2013. Það hét … Halda áfram að lesa Tjaldur og Rifsnes á Rifi

Sigurþór GK 43

1427. Sigurþór GK 43 ex Árni ÓF 44. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sigurþór GK 43 hét upphaflega Árni ÓF 44 og var smíðaður 1975 hjá Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar á Skagaströnd. Báturinn, sem var rétt tæplega 30 brl. að stærð, var smíðaður fyrir Árna sf. á Ólafsfirði en árið 1983 er hann seldur til Grindavíkur. Þar fær … Halda áfram að lesa Sigurþór GK 43