1576. Kolbeinsey ÞH 10. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Kolbeinsey ÞH 10 liggur hér við Þvergarðinn í Húsavíkurhöfn en þar var hennar pláss. Togarinn var smíðaður fyrir Höfða hf. á Húsavík í Slippstöðinni á Akureyri. Kolbeinsey var gefið nafn og hún sjósett þann 7. febrúar 1981. Til heimahafnar kom hún 10. maí sama ár. Kolbeinsey var eins og segir í upphafi fyrst … Halda áfram að lesa Kolbeinsey ÞH 10
Month: ágúst 2024
Borgin ÞH 70
2494. Borgin ÞH 70 ex Garðar ÍS 225. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2015. Borgin ÞH 70 kemur hér að landi á Húsavík sumarið 2015 en það var Hjalti Háfdánarson sem gerði hana út tul strandveiða. Báturinn, sem er 8 brl. að stærð, hét upphaflega Jakob Valgeir ÍS 84 frá Bolungarvík og var smíðaður árið 2000 fyrir … Halda áfram að lesa Borgin ÞH 70
Briljant
IMO 6711807. Briljant ex Vonin. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Briljant heldur hér til veiða, held ég, frá Split í Króatíu en skipið var smíðað í Rosslau í Þýskalandi árið 1967. Briljant er 182 GT að stærð, 32 metra að lengd og breiddin er 7 metrar. Siglir undir Króatíski flaggi. Skipið hét upphaflega Brilliant en árið … Halda áfram að lesa Briljant
Krilo Tropic
IMO 9969546. Krilo Tropic í höfninni á Hvar. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Þessi glæisilega tvíbytna á myndinni heitir Krilo Tropic og er að fara frá bryggju á eynni Hvar á Adríahafi. Hvar tilheyrir Króatíu og siglir Krilo Tropic frá Split, þar sem hún á heimahöfn, og út í nærliggjandi eyjar. Krilo Tropic, sem var smíðuð … Halda áfram að lesa Krilo Tropic
Tuugaalik
IMO:9922897. Tuugaalik GR-6-10. Ljósmynd Magnús Jónsson 2024. Grænlenski frystitogarinn Tuugaalik GR-6-10 kom til Hafnarfjarðar á dögunum en þar landar togarinn reglulega. Togarinn, sem er nýr og glæsilegur eins og lesa má um hér, var nokkuð laskaður að sjá en hann rakst á borgarísjaka í mikilli þoku við veiðar milli Grænlands og Íslands. Lesa nánar um … Halda áfram að lesa Tuugaalik
MSC Sinfonia
IMO 9210153. MSC Sinfonia ex Europian Star. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Skemmtiferðaskipið MSC Sinfonia lætur hér úr höfn í Split á dögunum en borgin er önnur stærsta borg Króatíu. Skipið var smíðað árið 2002 í Frakklandi og bar upphaflega nafnið Europian Dream og síðar Europina Star. Frá árinu 2004 hefur það borið nafnið MSC Sinfonia. MSC Sinfonia … Halda áfram að lesa MSC Sinfonia
Viking Jupiter
IMO 9796262. Viking Jupiter. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Norska skemmtiferðaskipið Viking Jupiter siglir hér út frá Split í Króatíu síðdegis í gær. Ferðinninn heitið til annarrar borgar við Adríahafið, Dubrovnik, sem einnig er í Króatíu. Viking Jupiter er 47,861 GT að stærð, lengd skipsins er 228 metrar og breiddin 29 metrar. Skipið, sem var smíðað … Halda áfram að lesa Viking Jupiter
Trillubátar í fjöru
Trillubátar í fjörunni undan Beinabakkanum. Ljósmynd SRR. Hér gefur að líta trillur í fjörunni undan Beinabakkanum á Húsavík. Myndin var tekin um miðjan sjöunda áratug síðustu aldar. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can view them in higher resolution.
Exploris One
IMO 8806747. Exploris One ex Silver Explorer. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Skemmtiferðaskipið Exploris One kom til Húsavíkur í morgun og lagðist að Bökugarði. Exploris One var smíðað í Rauma í Finnlandi árið 1989 og hét upphaflega Dream 21. Árið 2002 fékk það nafnið World Discoverer sem það bar til ársins 2008 er það fék nafnið … Halda áfram að lesa Exploris One








