1505. Ásgeir RE 60. Ljósmynd Sigtryggur Georgsson. Ísbjarnartogarinn Ásgeir RE 60 er á toginu á þessari mynd en hann var smíðaður fyrir Ísbjörninn hf. í Flekkefjørd í Noregi árið 1977. Hann kom til heimahafnar 22. desember en systurskip hans Ásbjörn RE 50 kom síðan 28. mars 1978. Ásgeir og Ásbjörn mældust 442 brl. að stærð, … Halda áfram að lesa Ásgeir RE 60 á toginu
Month: júní 2024
Lómur HF 177
1940. Lómur HF 177 ex Búðafell HU 90. Ljósmynd Alfons Finnsson. Lómur HF 177 kemur hér að landi í Ólafsvíkum árið og Alfons fangaði hann á filmu. Lómur hét áður Búðafell SU 90 en upphaflega Rósa HU 294 frá Hvammstanga og var smíðaður árið 1988 hjá hjá Johan Drage A/S, Skipsverft og Mekanisk Verkted í Rognan í Noregi. Búðafell SU … Halda áfram að lesa Lómur HF 177
Búðafell SU 90
1940. Búðafell SU 90 ex Rósa HU 294. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Rækjubáturinn Búðafell SU 90 frá Fáskrúðsfirði kemur hér til hafnar á Húsavík um árið en hann hét upphaflega Rósa HU 294 frá Hvammstanga. Rósa HU 294, sem var 68 brl. aðstærð, var smíðuð hjá Johan Drage A/S, Skipsverft og Mekanisk Verkted í Rognan í Noregi. Hún kom í fyrsta … Halda áfram að lesa Búðafell SU 90
Rósa HU 294
1940. Rósa HU 294. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Rósa HU 294 var smíðuð fyrir samnefnt hlutafélag hjá Johan Drage A/S, Skipsverft og Mekanisk Verkted í Rognan í Noregi. Báturinn, sem var 68 brl. að stærð, kom í fyrsta skipti til heimahafnar á Hvammstanga 4. ágúst árið 1988. Rósa HU 294 var sérstaklega byggð til togveiða og er með búnaði til að frysta rækju. … Halda áfram að lesa Rósa HU 294
Kristbjörg ÞH 44 fyrsti báturinn í slipp á Húsavík
1420. Kristbjörg ÞH 44. Ljósmynd Pétur Jónasson. Þann 3. nóvember 1982 var Kristbjörg ÞH 44 fyrsti báturinn sem tekinn var upp í nýjan slipp á Húsavík. Dagur sagði svo frá þann 9. nóvember: Það var stór stund í lífi húsvískra sjómanna s.l. miðvikudag. Reyndar má segja í tilveruallra Húsvíkinga. Hinn langþráði draumur um dráttarbraut í bænum var … Halda áfram að lesa Kristbjörg ÞH 44 fyrsti báturinn í slipp á Húsavík
Wilson Calais við Bökugarðinn
IMO 9156101. Wilson Calais ex Steffen Sibum. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Flutningaskipið Wilson Calais kom til Húsvíkur í gærkveldi með hráefnisfarm fyrir kísilver PCC á Bakka. Skipið, sem var smíðað í Serbíu árið 2001, er tæplega 100 metra langt og breidd þess er 12,80 metrar. Það mælist 2,994 GT að stærð og siglir undir fána Barbadoseyja með … Halda áfram að lesa Wilson Calais við Bökugarðinn
Bjóðin tekin
Bjóðin tekin um borð. Ljósmynd SRR. Hér verið að taka línubjóðin um borð í Andvara ÞH 81 en myndin var tekin um miðjan sjöunda áratug síðustu aldar. Bjóðabíllinn Þ 335 og hverjir kallarnir eru ætla ég ekki að tjá mig um. Um Andvara ÞH 81 má lesa hér en báturinn var smíðaður á Akureyri árið … Halda áfram að lesa Bjóðin tekin
Kristbjörg VE 70
136. Kristbjörg VE 70 ex Guðrún Magnúsdóttir VE 69. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Kristbjörg VE 70 kemur til hafnar í Vestmannaeyjum en þaðan var báturinn gerður út alla tíð. Kristbjörg var smíðuð í Noregi árið 1960 fyrir Svein Hjörleifsson í Vestmannaeyjum. Íslensk skip IV bindi: Smíðuð í Noregi 1960, stál 113 brl. 550 hestafla Völund diselvél. … Halda áfram að lesa Kristbjörg VE 70
Afi Toni EA 127
5493. Afi Toni EA 127 ex Árni ÞH 127. Ljósmynd Haukur Sigtryggur 2024. Strandveiðibáturinn Afi Toni EA 127 kemur hér að landi á Dalvík fyrir skömmu en hann er með heimahöfn á Akureyri. Afi Toni hét áður Árni ÞH 127 en Bragi Sigurðsson gerði hann út í árafjöld frá Húsavík. Um Árna ÞH 127 var skrifað á … Halda áfram að lesa Afi Toni EA 127
Freyja ÞH 125
421. Freyja ÞH 125 ex Freyja KE 42. Ljósmynd SRR. Freyja ÞH 125 liggur hérvið bryggju á Húsavík um árið og það er greinilega verið að kíkja á eitthvað neðan sjólínu að aftan. Freyja ÞH 125 var smíðuð í Danmörku árið 1930 en um bátinn má lesa hér. Báturinn var gerður út frá Húsavík á … Halda áfram að lesa Freyja ÞH 125









