Seley ÞH 381

1076. Seley ÞH 381 ex Guðrún Þorkelsdóttir SU 211. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Seley ÞH 381 heldur hér til rækjuveiða sumarið 2004 en það var Íshaf hf.á Húsavík sem gerði hana út. Upphaflega hét skipið Helga Guðmundsdóttir BA 77 og var smíðuð í skipasmíðastöð Þorgeirs & Ellerts á Akranesi. Hún var smíðuð fyrir Vesturröst hf. … Halda áfram að lesa Seley ÞH 381

Edenborg kom í dag

IMO 9463449. Edenborg. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Hollenska flutningaskipið Edenborg kom til Húsavíkur í dag með hráefnisfarm fyrir PCC á Bakka. Skipið er 138 metrar að lengd, breidd þess er 16 metrar of það mælist 7,196 GT að stærð. Edenborg var smíðað hjá Wagenborg Shipping í Hollandi árið 2010 og er með heimahöfn í Delfzijl. … Halda áfram að lesa Edenborg kom í dag

Þórsnes SH 109

2936. Þórsnes SH 109 ex Veidar 1. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2024. Tryggvi Sigurðsson tók þessa glæsilegu mynd í vikunni þegar Þórsnes SH 109 kom til hafnar í Vestmannaeyjum. Þórsnesið var keypt frá Noregi og kom til heimhafnar í Stykkishólmi sumarið 2017. Í Noregi  bar skipiðð nafnið Veidar 1 M-76-G og var með heimahöfn í Álasundi. … Halda áfram að lesa Þórsnes SH 109

Blómfríður SH 422

1244. Blómfríður SH 422 ex Gunnar Bjarnason SH 422. Ljósmynd Alfons Finnsson. Blómfríður SH 422 hét upphaflega Harpa GK 111 og var smíðuð árið 1972 fyrir Gullvík hf. í Grindavík. Smíðin fór fram hjá Skipasmíðastöð Þorgeirs & Ellerts hf. á Akranesi. Harpa, sem var 103 brl. að stærð, var seld til Grundarfjarðar árið 1975 þar … Halda áfram að lesa Blómfríður SH 422

Sjöfn ÁR 123

2004. Sjöfn ÁR 123 ex Sjöfn NS 123. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sjöfn ÁR 123 frá Eyrarbakka kemur hér að landi í Þorlákshöfn um árið en báturinn var smíðaður á Fáskrúðsfirði. Guðlaugur Einarsson skipasmiður smíðaði bátinn og smíðaár er 1989. Hann var 10 brl. að stærð smíðaður úr furu og eik. Báturinn hét í upphafi Egill … Halda áfram að lesa Sjöfn ÁR 123