Ný Clepopatra 36 til Noregs

Varde VL-94-AV. Ljósmynd Trefjar 2024. Útgerðarfélagið Tøkje Båt AS í Austevoll í Noregi fékk nú á dögunum afhentan nýjan Cleopatra 36 bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Það er Ole Tøkje sem stendur að útgerðinni en hann verður jafnframt skipstjóri á bátnum. Nýj báturinn heitir Varde og er 10.99 metrar á lengd og mælist 11 … Halda áfram að lesa Ný Clepopatra 36 til Noregs

Áskell að draga netin

298. Áskell ÞH 48. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1982. Áskell ÞH 48 frá Grenivík er hér að draga netin á vetrarvertíð árið 1982. Áskell ÞH 48 var smíðaður fyrir Gjögur h/f á Grenivík í Danmörku 1959, ári eftir að fyrirtækið missti Von TH 5. Von strandaði við Reykjanes árið 1958, mannbjörg varð en báturinn eyðilagðist. Áskell … Halda áfram að lesa Áskell að draga netin

Heiðrún ÍS 4

1506. Heiðrún ÍS 4. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Skuttogarinn Heiðrún ÍS liggur hér í Reykjavíkurhöfn um árið og aftan við hana má sjá Bjarma frá Tálknafirði. Heiðrún, sem var 294 brl. að stærð, var smíðuð árið 1978 í Skipasmíðastöð Marselíusar Bernharðssonar h/f á Ísafirði fyrir Völustein h/f í Bolungarvík. Togarinn var búinn 1450 hestafla Alpha aðalvél. … Halda áfram að lesa Heiðrún ÍS 4

Bátar við bryggju á Skagaströnd

Bátar við bryggju á Skagaströnd. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Hér gefur að líta nokkra báta við bryggju á Skagaströnd um árið, sennilega 1989. Þarna má þekkja Nökkva HU 62, Helgu Björgu HU 7 og Bjarna Helgason HU 109 auk Arnarborgarinnar sem var HU 11. Allir smíðaðir á Íslandi nema sá síðastnefndi. Með því að smella á … Halda áfram að lesa Bátar við bryggju á Skagaströnd