Þorbjörn GK 540

914. Þorbjörn GK 540. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1986. Eikarbáturinn Þorbjörn GK 540 kemur hér að landi í Grindavík á vetrarvertíð árið 1986, ef ég man rétt. Þorbjörn GK 540 var smíðaður árið 1959 í Þýskalandi fyrir Hraðfrystihús Þórkötlustaða hf. sem gerði bátinn út til ársins 1988. Í lok þess árs keypti Skagstrendingur hf. bátinn, sem … Halda áfram að lesa Þorbjörn GK 540

Julíus Havsteen ÞH 1

2262. Júlíus Havsteen ÞH 1 ex Quaasiut II. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson  Frystitogarinn Júlíus Havsteen ÞH 1 kemur hér til hafnar á Húsavík eftir veiðferð á rækjuslóð. Útgerðarfélagið Höfði á Húsavík keypti togarann frá Grænlandi árið 1995 og kom hann í fyrsta skipti til heimahafnar í janúarmánuði árið 1996. Togarinn  hét upphaflega Quaasiut II og var smíðaður … Halda áfram að lesa Julíus Havsteen ÞH 1

Oddeyrin og Víðir

1376. Víðir EA 910 - 2750. Oddeyrin EA 210. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2007. Þessi mynd var tekin þegar Oddeyrin EA 210 kom í fyrsta skipti til heimahafnar á Akureyri í febrúarmánuði árið 2007. Samherji keypti togarann frá Noregi þar sem  hann bar nafnið Andenesfisk II. Hann var smíðaður á Spáni árið 2000.  Oddeyrin lagðist að … Halda áfram að lesa Oddeyrin og Víðir

Wilson Perth við Bökugarðinn

IMO 9287766. Wilson Perth ex Arklow Resolve. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Flutningaskipið Wilson Perth kom til Húsvíkur í gærkveldi og lagðist að Bökugarðinum þar sem skipað er upp hráefnisfarmi fyrir kísilver PCC á Bakka. Wilson Perth var smíðað í Hollandi árið 2004 og er 90 metra að lengd. Breidd þess er 14,2 metrar og það mælist 2,999 … Halda áfram að lesa Wilson Perth við Bökugarðinn