Spánartogarar ÚA

1395. Kaldbakur EA 1 og 1412. Harðabakur EA 3. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2007. Hér liggja Spánartogararnir Kaldbakur EA 1 og Harðbakur EA 3 (fjær) við ÚA bryggjuna á Akureyri í aprílmánuði árið 2007. Þeir voru smíðaðir fyrir ÚA í Astilleros Luzuriaga S.A. skipa­smíðastöðinni í Pasaj­es de San Juan skammt frá San Sebastian á Norður-Spáni. Kaldbakur … Halda áfram að lesa Spánartogarar ÚA

Þorleifur við bryggju á Húsavík

1452. Þorleifur EA 88 ex Hrönn ÞH 275. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1984. Þarna er verið að landa úthafrækju úr Þorleifi EA 88 á Húsavík, sennilega sumarið 1984. Báturinn hét upphaflega Hrönnn ÞH 275 frá Raufarhöfn og var smíðaður fyrir Þorgeir Hjaltason í Bátasmiðjunni Vör h/f á Akureyri árið 1976. Árið 1982 var báturinn seldur til … Halda áfram að lesa Þorleifur við bryggju á Húsavík

Ólafur Magnússon EA 250

161. Ólafur Magnússon EA 250. Ljósmynd úr einkasafni. Þarna hafa kallarnir á Ólafi Magnússyni EA 250 lent í einhverju brasi á loðnuveiðum í denn. Súlan EA 300 kom til aðstoðar og allt virðist hafa farið vel. Ólafur Magnússon EA 250 var smíðaður árið 1960 í Brattvaag Skipsinnredning AS í Brattvaag í Noregi og hafði smíðanúmer … Halda áfram að lesa Ólafur Magnússon EA 250

Fram ÞH 171

1322. Fram ÞH 171. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Vélbáturinn Fram ÞH 171 var smíðaður árið 1973 af Baldri Halldórssyni á Hlíðarenda við Akureyri. Bátinn, sem var 7 brl. að stærð, smíðaði Baldur úr eik og furu fyrir feðgana Sigurð Jónsson og Ólaf Ármann Sigurðsson á Húsavík.  Árið 1992 fékk báturinn nafnið Haförn ÞH 26 en hann var síðan … Halda áfram að lesa Fram ÞH 171

Óskar Magnússon AK 177

1062. Óskar Magnússon AK 177. Ljósmynd úr einkasafni. Óskar Magnússon AK 177 var smíðaður í Stálvík árið 1967 fyrir Þórð Óskarsson hf. á Akranesi. Hér má lesa nánar um skipið sem frá árinu 1976 hefur ýmist borið nafnið Kap eða Kap II og gerð út frá Vestmannaeyjum. Með því að smella á myndina er hægt … Halda áfram að lesa Óskar Magnússon AK 177

Flóabáturinn Drangur

1617. Flóabáturinn Drangur við bryggju á Húsavík. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér gefur að líta flóabátinn Drang við bryggju á Húsavík, nánar tiltekið utan á Suðurgarðinum. Drangur, sem smíðaður var í Rúmeníu, var keyptur ársgamall frá Noregi og kom til Akureyrar í júlímánuði árið 1982. Heimild: Dagur Miði frá Hauki Sugtryggi: 1617....Drangur.... TF-IQ. IMO: 8988959. Skipasmíðastöð: … Halda áfram að lesa Flóabáturinn Drangur

Haldið til veiða

1639. Dalaröst ÞH 40 - 1170. Baldur Árna ÞH 50. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2003. Þessi mynd sýnir bátana Dalaröst ÞH 40 og Baldur Árna ÞH 50 halda til veiða frá Húsavík sumarið 2003. Dlaröstin gerð út til dragnótaveiða af Flóka ehf.en Aðalsteinn Ómar Ásgeirsson útgerðarmaður á Ísafirði gerði út Baldur Árna til úthafsrækjuveiða. Með því … Halda áfram að lesa Haldið til veiða

Sigurborg á Skjálfanda

1019. Sigurborg SH 12 ex Sigurborg HU 100. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2003. Það hafa birst áður myndir úr skemmtilegri seríu sem ég tók að kveldi 18. júlí árið 2003 og sýna rækjubátinn Sigurborgu SH 12 á Skjálfanda. En hér kemur ein til viðbótar en Sigurborgin landaði mikið á Húsavík á þessum árum. Sigurborg hét upphaflega … Halda áfram að lesa Sigurborg á Skjálfanda