Wilson Norfolk á Skjálfanda

IMO 9430997. Wilson Norfolk. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Flutningaskipið Wilsion Norfolk hefur legið við festar á Skjálfanda síðustu daga en í dag var það komið að Bökugarðinum og uppskipun hafin. Skipið, sem kom með hráefnisfarm til PCC á Bakka, var smíðað árið 2011. Það siglir undir fána Möltu og er með heimahöfn í Valletta. IMO … Halda áfram að lesa Wilson Norfolk á Skjálfanda

Jökull SK 33

1997. Jökull SK 33. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Jökull SK 33 frá Sauðárkróki kemur hér til hafnar á Húsavík eitt vorið en hann var þá á þorskanetum. Jökull SK 33 var smíðaður í Ustka Shipyard í Ustka í Póllandi, smíðanúmer PA 5005. Hann kom í fyrsta skipti til heimahafnar á Sauðárkróki 22. nóvember árið 1989. Jökull … Halda áfram að lesa Jökull SK 33

Þuríður Halldórsdóttir GK 94

1009. Þuríður Halldórsdóttir GK 94 ex Sóley ÍS 225 Þessi mynd var tekin í desember árið 1991 þegar Þuríður Halldórsdóttir GK 94 kom til Húsavíkur en Korri hf. hafði þá keypt bátinn af Valdimar hf. í Vogum á Vatnsleysuströnd. Báturinn fékk nafnið Kristbjörg II ÞH 244 en sumarið 1992 fékk hann nafnið Kristbjörg ÞH 44 en … Halda áfram að lesa Þuríður Halldórsdóttir GK 94