
Grænlenski frystitogarinn Svend C GR-6-23 kom til hafnar í Reykjavík á sunnudagsmorgni í júnímánuði sl.
Ég var staddur í höfuðborginni og sá til ferða hans á AIS-kerfinu. Ég beið hans inn við sundin og tók meðfylgjandi myndir.
Svend C var hannaður af fyrirtækinu Skipsteknisk í Noregi og smíðaður í Tersanskipasmíðastöðinni í Tyrklandi.
Sú stöð smíðaði einnig Sólberg ÓF 1 sem kom til landsins í maí 2017 en Svend C var afhentur í desember 2016.
Togarinn er 83,50 metrar að lengd, 17 metrar á breidd og 4.916 BT að stærð.
Samkvæmt upplýsingum sem ég fékk er 9456 hestafla Wartsila aðalvél í honum.


Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í stærri upplausn.