
Þessi mynd er síðan 19. ágúst sl. þegar línubáturinn Eskey ÓF 80 kom til hafnar á Siglufirði.
Eskey var sjósett á Siglufirði í aprílmánuði 2016 en hún var smíðuð hjá Siglufjarðar-Seig fyrir Akraberg ehf.
Skrokkur Eskeyjar var smíðaður hjá Seiglu á Akureyri og var 11 metra langur en þeir hjá Siglufjarðar-Seig lengdu hann í 15 metra og fullkláruðu. Mælist báturinn 27,2 brúttótonn að stærð.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í stærri upplausn.