1345. Freri RE 73 ex Ingólfur Arnarson RE 201. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Freri RE 73 kemur hér til hafnar í Reykjavík í aðdraganda Sjómanndagsins um árið en það var Ögurvík hf. sem gerði hann út. Freri hét upphaflega Ingólfur Arnarson RE 201, og var einn stóru Spánartogaranna svokölluðu og sá eini sem er enn í … Halda áfram að lesa Freri RE 73
Jói ÍS
7417. Jói ÍS 118 ex Jói ÍS 10. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Jói ÍS 118 kom við á Húsavík í ágústmánuði árið 2021 og þá var þessi mynd tekin. Báturinn hét upphaflega Þrándur KE 67 og var smíðaður hjá Bátasmiðju Guðmundar árið 1995. Árið 2000 fékk báturinn nafnið Jói ÍS 10 með heimahöfn á Ísafirði. … Halda áfram að lesa Jói ÍS
Silver Endeavour á Skjálfanda
IMO 9821873. Silver Endeavour ex Crystal Endeavor.. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Skemmtiferðaskipið Silver Endeavour kom í morgun inn á Skjálfanda og lagðist við stjóra fram undan Húsavíkurhöfðanum. Silver Endeavor er 168 metra langt og 28 metra breitt og smíðaár er 2021. Það mælist 20.449 GT að stærð. Skipið hét fyrsta árið Crystal Endeavour og kom … Halda áfram að lesa Silver Endeavour á Skjálfanda
Systurskip við slippkantinn
1586. Kolbeinsey ÞH 10 - 1598. Örvar HU 21. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér liggja systurskip við slippkantinn á Akureyri um árið og þá búið að selja annað þeirra úr landi. Kolbeinsey ÞH 10 og Örvar HU 21 sem bæði voru smíðuð í Slippstöðinni á Akureyri, Kolbeinsey afhent árið 1981 og Örvar 1982. Örvar var seldur … Halda áfram að lesa Systurskip við slippkantinn
Slyngur EA 74
7518. Slyngur EA 74. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Slyngur EA 74 var smíðaður hjá Bátasmiðju Guðmundar fyrir samnefnt fyrirtæki á Akureyri árið 2001. Báturinn, sem er tæpar 5 brl. að stærð, hefur alla tíð átt heimahöfn á Akureyri. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the … Halda áfram að lesa Slyngur EA 74
Sævík mun fá nafnið Fjölnir
2714. Sævík GK 757 ex Óli Gísla. GK 112. Ljósmynd Jón Steinar 2022. Línubáturinn Sævík GK 757 fór í slipp í vikunni þar sem almenn skverun fer fram auk þess sem hann fær nýtt nafn. Eins og kom fram á síðunni var línuskipið Fjölnir GK 157 seldur til Noregs á dögunum og mun Sævíkin fá nafnið … Halda áfram að lesa Sævík mun fá nafnið Fjölnir
Trillur í fjörunni
Trillur í fjörunni framundan hafnarstéttinni á Húsavík. Ljósmynd SRR. Hér gefur að líta trillur í fjörunni framundan hafnarstéttinni á Húsavík. Myndin var tekin um miðjan sjöunda áratug síðustu aldar. Sú stærsta er ÞH 98 sem segir að þar sé um að ræða Ásgeir ÞH 98 sem síðar bar nöfnin Vilborg ÞH 98, Árný ÞH 98, … Halda áfram að lesa Trillur í fjörunni
Páll Pálsson ÍS 102
1274. Páll Pálsson ÍS 102. Ljósmynd Jón Páll Ásgeirsson. Páll Pálsson ÍS 102 var einn tíu togara sem íslensk útgerðarfyrirtæki létu smíða fyrir sig í Japan og komu heim á árinu 1973. Árið 2017 keypti Vinnslustöðin togarann af HG í Hnífsdal og fékk hann nafnið Sindri VE 60. Sindri var seldur til Spánar árið 2019 … Halda áfram að lesa Páll Pálsson ÍS 102
Við Húsavíkurhöfn 17. júní
Við Húsavíkurhöfn 17. júní 2024. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Það var fallegt og kyrrt veður við Húsavíkurhöfn að kveldi Þjóðahátíðardags og bátarnir spegluðust í haffletinu þar sem þeir lágu við flotbryggjurnar. Á myndinni eru Faldur, Sylvía og Bjössi Sör. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on … Halda áfram að lesa Við Húsavíkurhöfn 17. júní
Fjölnir seldur úr landi
1136. Fjölnir GK 157 ex Ocean Breeze. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Línuskipið Fjölnir GK 157 hefur verið seldur til Noregs og verður afhentur nýjum eigendum á næstu dögum. Báturinn hefur legið í Reykjavíkurhöfn undanfarna mánuði og var myndin hér að ofan tekin í byrjun maímánaðar. Fjölnir var smíðaður í Mandal í Noregi 1968 en keypt … Halda áfram að lesa Fjölnir seldur úr landi









