2995. Háey I ÞH 295. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Línubáturinn Háey I ÞH 295 tekur hér olíu í haustsólinni á Húsavík en myndin var tekin í septembermánuði þessa árs. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can view them in higher resolution
Tekið á móti nýju skipi
3059. Hákon ÞH 250. Ljósmynd hafþór Hreiðarsson 2024. Hér gefur að líta mynd frá því er nýi Hákon ÞH 250 kom til Reykjavíkur sl. sunnudag og lagðist að bryggju inn við Sundin. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can view them … Halda áfram að lesa Tekið á móti nýju skipi
Wilson North siglir inn Hvalfjörð
IMO 9430947. Wilson North. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Flutningaskipið Wilson North siglir hér inn Hvalfjörðinn á dögunum á leið sinni að Grundartanga. Skipið, sem er 123 metrar á lengd, 16 metra breitt og mælist 6,118 GT að stærð. Wilson North var smíðað árið 2010 og siglir undir Maltnesku flaggi með heimahöfn í Walletta. Með því að smella á … Halda áfram að lesa Wilson North siglir inn Hvalfjörð
Sæberg SU 9
252. Sæberg SU 9 e Guðrún Þorkelsdóttir SU 211. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Sæberg SU 9 hét upphaflega Jón Kjartansson SU 111 frá Eskifirði og var smíðaður fyrir samnefnt hlutafélag árið 1963. Smíðin fór fram í Noregi og var báturinn 278 brl. að stærð. Snemma sumars 1971 fékk báturinn nafnið Guðrún Þorkelsdóttir í skamman tíma en … Halda áfram að lesa Sæberg SU 9
Bára SH 27
2274. Bára SH 27 ex Sandvík EA 200. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Bára SH 27 hét upphaflega Sandvík SK 188 og var smíðuð á Ísafirði 1996 hjá Skipasmíðastöðinni hf. fyrir útgerðarfyrirtækið Tind ehf. á Sauðárkróki. Árið 2001 var báturinn seldur til Stykkishólms þar sem hann verður Sandvík SH 53. Hann var lengdur árið 2005 og … Halda áfram að lesa Bára SH 27
Klárir með endana
3059. Hákon ÞH 250 - Kallarnir klárir með endana. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Kallarnir á nýja Hákoni ÞH 250 voru klárir með endana þegar skipið kom að landi í Reykjavík sl. sunnudagsmorgun. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can view them … Halda áfram að lesa Klárir með endana
Hákon ÞH 250
3059. Hákon ÞH 250. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2024. Hákon ÞH 250 er kominn til landsins eins kemur fram í færslu frá því gær. Hákon var smíðaður hjá Karstensen Skibsvært A/S í Skagen. Hann er 75,4 metrar á lengd,16,5 metrar á breidd og mælist 3,178 BT að stærð. Það er Gjögur hf. sem lét smíða … Halda áfram að lesa Hákon ÞH 250
Nýi Hákon ÞH 250 kominn til landsins
3059. Hákon ÞH 250. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Hið nýja uppsjávarveiðiskip Gjögurs hf, Hákon ÞH 250, kom til landsins í morgun. Nánar tiltekið til Reykjavíkur. Meira síðar. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can view them in higher resolution
Hilmir SU 171
1551. Hilmir SU 171. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Hilmir SU 171 var smíðaður hjá Slippstöðinni á Akureyri og afhentur Hilmi hf. á Fáskrúðsfirði árið 1980. Hilmir var 642 brl. að stærð og lengd hans 56,48 metrar. Hilmir SU 171 var í íslenska flotanum til ársins 1993 en þá um haustið var hann seldur til Chile. Hilmir … Halda áfram að lesa Hilmir SU 171
Ný Cleopatra 33 til Kjøllefjord í Noregi
Tiina E F-32-LB. Ljósmynd Trefjar 2024. Útgerðarfélagið Sagen Fisk AS í Kjøllefjord í Noregi fékk nú á dögunum afhentan nýjan Cleopatra 33 bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Það er Tomas Sagen sem stendur að útgerðinni og verður hann jafnframt skipstjóri á bátnum. Báturinn, sem ber nafnið Tiina E, leysir af hólmi eldri Cleopatra 31 … Halda áfram að lesa Ný Cleopatra 33 til Kjøllefjord í Noregi









